Harold og Paul eru farnir til Parísar og Tad fékk að vera hjá Toadie á meðan.

Það er búið að stefna Toadie útaf þessum útvarpsþætti og hann ætlar að verja sig sjálfur.

Joel hætti með Flick og stakk síðan af og sendi Flick eitthvað sorry bréf. Flick virkilega hatar pabba sinn eins og er og talar ekki við hann.

Steph fékk leyfi hjá Foreldrum sínum til þess að leyfa Woody að vera hjá þeim, þar til hann findi sér sitt eigið húsnæði og almennilega vinnu. Flick var ekki mikið ánægð að heyra það.

Lou er alveg að tapa sér.. Aðra stundina er hann rosa happy og hina fer allt í taugarnar á honum. Hann er orðin pillufíkill, en í lokin henti hann öllum pillunum sínum í vaskinn

Pabbi Matt´s (nýja Barþjónsins) keyfti húsið af Tess og Dee, Dee ætlar að flytja inn til Toadie, Joel er ekki mikið ánægður þar. Og Tess ætlar að flytja til eitthverra vinkvenna sinna minnir mig.

Darcy er komin aftur, og þegar hann og Dee hittust á barnum, föðmuðust þau eitthvað svaka. Dee er alveg yfir sig ástfangin. Þau eru samt ekkert saman.

Drew og Libby ákváðu að í stað þess að gera trommaran fyrir ofan brjálaðan þá ákváðu þau að vera bara rosa kammó og buðu honum í mat, Hann þáði það en ekki fyrren í næstu viku. Þannig að Drew þarf að vera með honum einum því Libby er að fara í þetta brúðkaup.

Svo man ég ekki meira