ok ég ætla ekki að vera með fordóma gagnvart þeim sem fíla nágranna, mig langar bara að þið segið mér hvað sé svona skemmtilegt við þessa þætti. ég hef horft á nokkra þætti, og verð að segja að mér finnst þetta bara vera eins og hver önnur sápa, vandamálin koma á færibandi og verða dramatískari með hverjum degi.
ég fylgist nottla ekkert með þessu, hef betra við tímann að gera, og kannski væri meira gaman að þessu ef maður væri að horfa á hvern einasta þátt, en samt… maður getur ekki annað en efast um að þetta sé í raun eitthvað skemmtilegt, svo skemmtilegt að fólk horfi á þetta stanslaust í 15 ár, því marr getur ekki hætt að horfa á þetta því þá dettur maður út úr atburðarásinni. eða hvað? er ég bara að rugla?