Það sem ég man úr þættinum í dag.
Flick og Joel voru að skipuleggja tískusýningu hersins. Joe þóttist vilja hjálpa til (en var alltaf eitthvað að snuðra í kringum Flick og Joel). Tískusýningin tókst mjög vel en þegar tískkusýningin var búin kom Dionne með bréf til Flick sem hún sagði að hún ætti að fá. Það var frá leynda aðdáendanum. Aðdáandinn hafði sett mynd af Joel sem var tekin á tískusýningunni og sett í bréfið. Flick var brugðið og uppgötvaði að manneskjan hafði verið í salnum og var farin að verða soldið hrædd.
Allana og Lance rifust um hvort hann ætti að fara í útvarpsþáttinn. Hún hótaði honum að hann gæti farið einn til Bandaríkjanna ef hann myndi ekki hætta við. Lance ákvað að fara en honum hefur örugglega snúist eitthvað hugur, því hann hringdi í Allönu nokkrum mínútum áður en útsendingin átti að byrja og bað hana að hlusta. Og þannig endaði þátturinn í dag.