Þar sem ég sá Granna í gær datt mér í hug að deila þættinum með ykkur sem ekki sáu.

Woody fékk þetta leyfi sitt og er núna fanginn hennar Steph eins og hún orðaði það. Hann er hins vegar greinilega með óhreint mjöl í pokahorninu en ég er ekki alveg viss hvað hann og þessi hálf sköllótti félagi hans eru að bralla. Hann talaði við einhvern félagi sinn í síma í gær og var greinilega eitthvað að bralla…

Michelle og Tim rifust, hann var víst svona hrifinn af henni :) Hún sagðist ekki vilja eiga neinn kærasta og hann var ógeðslega sár. Mér fannst það nú bara fyndið því ég hélt að hann væri miklu yngri en hún, hann virðist vera svona 10-11 ára. Hann kom samt heim til hennar í endann og baðst fyrirgefningar á að hafa verið svona reiður og þau ætla að vera vinir áfram, jibbý! ;)

Svo var grillkeppnin loks haldin. Madge, Susan og Lyn komu á síðustu stundu og ætluðu sér að vinna kallana. Dómarinn var frekar leiðinlegur við alla keppendur þegar kom að smökkun og þefaði bara af matnum hjá flestum. Hann smakkaði hjá stelpunum og Joe, og Joe vann. En Joe var með aðstoðarmann, Hung, sem kom með einhverja leyniuppskrift að maríneringu :)

Meira gerðist nú bara ekki held ég!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _