Það kemurí ljós að það sem Alana skammast sín svona hrikalega fyrir er það að hún býr hjá mömmu sinni…þið getið lesið meira um það mál í greininni um Allönu frá JohnnyB!=) Toadie gerir sér grein fyrir því að Lou er alvara með þetta svokallaða “stríð” sitt en þeir gætu alveg talað hann til ef Toadie væri ekki svona ógeðslega þrjóskur. Magde skiptir sér eitthvað af málunum og vill að strákarnir reyni að sættast við Lou vegna langrar vináttu..! Mér sýnist Joel nú ekkert hafa á móti því að Flick ofsækji sig. Hún er farin að fara voða mikið út að skokka og reynir að halda sig allsstaðar þar sem hann er. Það sem skeði í dag er að Harold vill fá þau til að vera módel á “tískusýningu” hjálpræðishersins. Felicity samþykkir eins og skot en Joel er eitthvað tregur og segist ætla að hugsa þetta. Svo sér Flick Joel vera að koma skokkandi og fer þá með hundinn út á bílastæði og lætur hann rúlla sér eitthvað þar ….bara svo hann taki alveg örugglega eftir því. Svo er hún að elda að og fer að spurja pabba sinn hvort strákar vilja stundum vera “hard to get” til að stelpan verði hrifnari eða halda henni heitri…pabbi hennar veit að hún er að tala um einhvern sérstakan en um hvern veit hann ekki. Svo í endann er hann að fara að keyra henni á köfunarnámskeiðið og þegar hún fer út úr dyrunum sér hún Joel fara hlaupandi á námskeiðið hún segir pabba sínum að hún skokki og hleypur til Joels…ég er ekki viss hvort Joe grunar eitthvað…en svo er það ákveðið að Joel og Flick verða módel fyrir Harold.
Endilega bætið við…