Ýmsir á förum :(    *SPOILER* Það er nú alltaf svo að einhverjir hætta í nágrönnum og nýjir koma í staðinn, og ég var að lesa á neighbours.com hverjir m.a. eru að fara (eða farnir) og að koma.

Joel og Lance eru báðir fluttir út frá Toadie og í dag búa hann og Dee saman á númer 30.

Lou kallinn býr einn (man ekki hvað varð um Lolly, var búinn að heyra það einhver staðar) og á 24 búa Harold og Tad einir, Madge er dáin og Paul flytur víst út á næstu dögum (í þáttunum úti þ.e.a.s.)

Hanock fjölskyldan hefur hreiðrað um sig á 32 og Tess er á bak og brott. Drew og Libby eru flutt frá Ramsay Street en eru þó enn í þáttum (Non-Ramsay St. residents).

Já það ljóst að þó nokkrar breytingar eru fram undan á næstunni, þó er örugglega a.m.k. ár í þetta hjá okkur, veit ekki nákæmlega hversu langt við erum á eftir.

Nokkur ný andlit eru væntanleg í bæinn og eru það m.a. Stuart
'Chooka' Parker, einhver gamall kunningi Drew frá Oakey og stúlkukind að nafni Elly Conway, en meðfylgjandi mynd er af henni, en hún mun eiga að vera 15 ára gömul frænka Kennedy hjónana. Einnig mun Mal Kennedy eiga að snúa aftur í nokkra þætti eða svo.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _