Alana - 04.01.2002 Jæja þá eru Lance og Alana, eða Dorothy, hætt saman! Hann og Toadie fóru í heimsókn til hennar, eða Toadie dró hann, þar sem hann vildi endilega sjá híbýli hennar! Til dyra kom mamma hennar (sem þeir gerðu ráð fyrir að væri bara líka í heimsókn) og fast á hæla hennar fylgdi Alana, alveg hoppandi vitlaus yfir því að þeir skyldu vera komnir í heimsókn.

Alana er búin að vera endalaust dularfull og vildi greinilega ekki að Lance kæmist að þessu og sagði honum því upp! Eða réttara sagt sagðist aldrei vilja sjá hann aftur…

Nú er greyið Lance niðurbrotinn, þið munið nú hvernig hann var þegar hann og Amy hættu saman, og fátt bendir til þess að þau muni byrja saman aftur. Lance er búinn að reyna að tala við hana en hún vill bara ekkert með hann hafa! Það er samt aldrei að vita, við skulum bíða og sjá!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _