Hmmm….spítalinn er að fara að halda einhverja starfsmannaveislu og Dee ákveður að spyrja Darcy með hverjum hann ætli og hann segist ætla með Karl og Susan og Dee spyr hvort hún megi ekki vera daman hans. En þá er víst Alice, konan hans að koma og hún ætlar með honum. Darcy segir Dee að hann ætli að gefa hjónabandinu annað tækifæri og þakkar henni fyrir það…því hún gaf honum víst svo góð ráð…! Brosið á Dee frýs:) …Karl og Susan eru alveg æst í að hjálpa Darcy og Alice að ráða úr hlutunum ……
Tess reynir að segja Dee að gleyma honum og að hlutirnir eiga aldrei eftir að ganga upp á milli þeirra.
Lou reynir að vingast aftur við Toadie og vill sættast við strákana aftur…en Toadie neitar algjörlega ruglar um einhver leigjendalög og klúðrar sem sagt þessu tækifæri um að fá húsið aftur. Lou hótar stríði. Og áfram heldur þetta dularfulla mál um Allönu og húsið hennar…en Toadie pínir Lance til að koma með sér og koma í óvænta heimsókn til Allönu…þátturinn endar þannig að þeir eru að banka og Allana kemur aftan að þeim og öskarar að þeir megi ekki fara inn….verður held ég örugglega alveg brjáluð!!…Svo kom Libby líka aftur frá Oakey….
Endilega bætið inn í því sem ég gleymdi…