Ég var eitthvað að skoða neighbours á netinu og fann þá viðtal við Felicity (Holly) og hún er nú örugglega ekkert sú allra skemmtilegasta!!…Hún segir að hún þoli enga af meðleikurum sínum og hatar að þurfa að kyssa einhvern af þeim! Hún segir að fyrr myndi hún dauð liggja en að eyða tíma með einhverjum þeirra utan vinnu!!! Henni finnst alveg ömurlegt að foreldrar Felicity þurfi að vera svo hallærislegir og ömurlegast finnst henni að þurfa að leika einhverja 16 ára smástelpu!!….Hún dýrkar athyglina sem hún fær út á leik sinn í þáttunum…sérstaklega að karlmenn veiti henni athygli!!
Hún talaði við handritshöfundana og heimtaði að allt milli Joel og Felicity myndi taka enda því kærastanum hennar þótti svo óþægilegt að horfa upp á hann kyssa annan karlmann!!