Jæja í dag talaði Woody og Steph saman. Woody er eitthvað hrifinn af Steph en mér finnst hún vera á báðum áttum hvort hún eigi að taka við honum eða henda honum í burtu ég er samt ekki alveg viss ég hef það bara á tilfinningunni afþví að hún er ekki mikið fyrir að tala um þetta!!! Allavegna hún verður eitthvað fúl og hann reynir að afsaka sig en hún er hissa á því afþví að hann gerði það sjaldan og hann segir að þetta sé hinn nýji hann. Hann biður hana að koma aftur í heimsókn en hún segir bar kannski. Steph vill ekkert tala við Mömmu sína um Woody, reyndar veit hún ekkert hvar hann hefur verið en öll fjölskyldan dýrkar hann meira að segja Joe. Steph fékk vinnuna sem hún vonaðist eftir að fáog er í skýjunum yfir henni.
Joe sagði já við að verða guðfaðir en er samt eitthvað stressaður yfir þessu öllu smana og er að pæla í að hætta við allt saman!!!!
Tad, Paul og Michelle gerðu myndband handa bróður hans Tad og ætla að gefa honum það áður en að Tad fer í uppskurð til þess að bjarga honum. Madge og Harold vilja endilega fylgja Tad á spítalann en hann heimtar að fara einn. Þegar Tad kemur á spítalann er búið að færa Tim um deild og honum hefur hrörnað mikið. Hann verður alveg miður sín og er smá smeikur við að fara í aðgerðina. Hann fer í aðgerðina og þegar hann vaknar er Madge komin hún ætlaði sko ekki að láta hann vera þarna einan þegar hann vaknaði smaa hversu mikið hann vildi vera einn, en Tad tók bara vel á móti henni og hún færði honum blóm. En svo allt í einu gat Tad ekki meir og brotnaði niður og fór að gráta !!!!!
Þannig endar þátturinn !!!!
Ég man ekki eftir fleiru bætið bara við ef þið munið eftir einhverju!!!!!!
Gleðileg jól!!!!!