Í þættinum í dag byrjaði hann á því að Tad kom og var að ná í dótið sitt hjá Harold Og Madge. Þau voru að reyna að vera voða “kammo” en hann var alls ekki að fíla þau. Er greynilega sár yfir því að þau hafa hent þeim út. Joel fór yfir til Tess & Dee og bað Dee um að festa fyrir sig tölu á skyrtuna sína því loksins er komið að því. Í þessum þætti var ballið sjálf. Joel & Joe voru tilbúin að fara á ballið, þegar Flic var að hafa sig til þá skellti hún hælnum af skónum í kjólinn með þeim afleiðingum að það kom gat á hann. Mamma kom þá til bjargar og svo fór málingin að leka því hún fór svo að gráta. S.s ekki hannar dagur. Paul var að fara yfirum því það gekk frekar illa að koma Cheyenne á ballið. Það var engin lest sem gekk á kvöldin svo það endaði með því að Paul gat doblað Drew um að keyra sig að ná í hana. Svo þegar þau hittust þá var bara fullt af kossum og læti. Lou segði við Libby að Drew hafi verið að gera upp bjölluna fyrir hana og hún hafi ekki neitt annað en gert lítið úr bílnum. Auðvitað var Drew rosalega sár. Hún hraðaði sér því til Drew og ætlaði greynilega að tala við hann um bílinn. Allt gekk bara vel á ballinu Flic & Joel tóku sig bara rosalega vel út saman. Flick lét hljómsveitinni Human Nature spila sem óvæntur gestur. Eitthvað boy band svaka flottir strákar. Þegar Flic & Jole voru dansa á ballinu þá var Dee eitthvað smá abbó út í horni. En hverjum er svo sem ekki sama

Ég man bara ekki meira í bili
palinas
<img src="