Jæja í dag fékk Lance okkar loksins að hitta Alönu. Þau áttu góða stund saman og Lance var hjá henni alla nóttina. Þegar hann kom heim fóru hann og Toadie að tala saman og Lance sagði honum öll smá atriðin. Toadie sagði að þetta væri of gott til að vera satt og spurði hvort Alana ætti systur, Lance sagði að hún ætti sytur sem væri ný búin að ljúka við lögfræðinám og það fékk Toadie til þess að hugsa. Þegar Alana kemur í heimsókn byrijar Toadie að prra hana með þessu en þau hlusta ekki á hann, hún heldur nefnilegaq að þetta sé ekkert svo góð hugmynd. ( en ég verð að segja að hann Lance var æði í þessum frábæra galla. )

Steph fékk bréf frá gömlum kærasta en þau höfðu hætt saman fyrir tveimur árum áður. Michelle fer eitthvað að hneikslast á þessu og fer að segja öllum þetta. En ég hled að Steph vilji ekki að neinn viti af þessu. Hún var næstum því búin að hringja í hann en Michelle labbaði inn á hana og svo var ekkert meira um það.

Drew er að gera upp gamla Bjöllu handa Libby en hún veit ekkert af því en hún fékk bréf frá slysabótafélaginu sem segir að hún fá jafnvel bætur eftir slysið. Hún ætlar að nota peningana til þess að kaupa bíl og ætlar að fá lánað hjá pabba sínum þangað til að hún fær peningin en Drew fær hana til þess að hugsa um að eyða því frekar í glæsilega brúðkaupsferð. En þáa hefur einhver orð a´því að hún eigi líklegast fyrir báðu svo hún er´´a fullu á að leita sér af glæsilegum nýjum bíl. Hún segir Drew hvað henni langar mikið í nýjan bíl en hann er alltaf að reyna að vissa hana um að gamlir bílar eru góðir. Hún kemur til hans á verkstæðið og sér Bjölluna sem hann er að gera upp, hún segir við Drew að þetta sé algjört drasl og heldur áfram að tala um hvða henni lengar í nýjan bíl, hann heldur áfram að reyna að sannfæra hana um að þessi bíll sé frábær en hún hlustar ekki og þaátturinn endar einhvern megin þannig.


Sorry ef það eru einhverjar stafsetningarvillur eða innslátarviluur.
Ég man ekki meira bætið bara við ef þið munið eftir einhverju.