Þar sem að ég er búin að rugla þessu öllu saman þá sendi ég þetta bara inn í sömu greininni..

Libby og Drew eru bara alveg að springa úr hamingju og alltaf eitthvað að kyssast og faðmast og eitthvað álíka sorglegt.. Libby nær að draga það úr Drew að ástæðan fyrir að Steph láti svona sé að hún hafi verið hrifin af sér.. Libby verður auðvitað ekki mikið kát og fer að gruna eitthvað alltaf.. En jafnar sig svo og þær Steph komast að þeir niðurstöðu að hún ætti ekki að vera brúðarmær hjá þeim.

Lance er alveg að tapa sér yfir þessari Allönu og hún vill að hann fari þar sem Miron 0148 eða eitthvað sem þetta gervitungl hét myndi hrapa og átti hann að koma með brot úr þessu og láta hana fá..Það var 7 unda þrautinn.. Hann nær að draga Joel og Toadie með sér í leitað þessu
Þeir komast ekki langt þar sem allmargir aðrir höfðu hugsað sér að kikja á þetta líka og löggan hefur lokað öllum vegum.. Lance er svo eitthvað í fýlu og fer út og segist ætla að gera þetta sjálfur.. Svo þegar dimmir þá mígur hann á rafmagnsgirðingu og fær þetta væga stuð. Svo þeir þurfa að fara heim
Toadie fær þó þá hugmynd að taka ónýtan hljóðkút og breyta honum aðeins svo Allana heldur að þetta sé brot úr gervitunglinu. Hún trúir því sem gleður vitaskuld Litla Lance


Tess er alveg að klikkast á Dee þar sem hún hagar sér svo leiðinlega og nennir ekkert að taka til eða neitt.. Tess lætur hana heyra það og segir að þetta gangi ekki svona..

Bróðir hans Joe er komin þarna inn í dæmið held að hann hafi verið að rífast við konuna sína. Þar sem hann býr þarna hjá þeim núna.. Minnir að hann sé þessi “innbrotsþjófur” Og sveimér þá ef þessi gaur er ekki bara alveg eins og Joe. Sama hár og alles.. Ofboðslega leiðinlegur

Ég er að klikkast úr þreytu og heilinn á mér er ekki alveg að virka sem skildi frekar en fyrri daginnþ.. svo endilega bætið við því sem vanta