One tree hill 22. Júní 2007 (419) Þegar 2. sería af one tree hill var í gangi sendi ég oft inn greinar um þáttinn sem var nýbúið að sýna að hverju sinni á skjá einum. Ég ákvað að senda inn grein um þáttinn sem var sýndur 22. júní. (Af því að ég er svo mikill OTH aðdáandi)

—–

Þátturinn á undan endaði þannig að Lucas sá Dan og Karen kyssast rétt eftir að hann komst að því að Dan drap Keith. Þátturinn byrjaði þannig að Lucas kýlir Dan og þeir lenda í hálfgerðum slag. Síðan segir Lucas mömmu sinni frá því sem gerðist.

Í byrjun þáttarins tekur líka Whitey dótið sitt út af skrifstofunni sinni og er þá opinberlega hættur að þjálfa hjá Tree hill Ravens.

Peyton segir Brooke að hún fékk lærlingastöðu hjá eitthverju plötufyrirtæki í Los Angeles. Og þær ákveða að þær ætla að eyða sumarinu saman hjá foreldrum Brooke í LA.

Skólastjórinn í Tree hill high tilkynnir Haley að hún geti ekki haldið ræðu á útskriftinni, eins og var planað, útaf þessu með Nathan. (Daunte málið.) En Nathan bjargar því með því að tala við skólastjórann í endann og fá hann til að leyfa Haley að flytja ræðuna sína sem hún hafði unnið fyrir.

Lucas fer á lögreglustöðina og tilkynnir fyrir lögreglu að Dan hafi myrt Keith. En rannsóknarlögreglumaðurinn stórefaðist um að Dan hafi drepið Keith.

Brooke og Chase ákveða að skrifa í árbók hvor annara. Chase skrifaði gangi þér vel í framtíðinni, gaman að kynnast þér. En Brooke hinsvegar skrifaði tilfinningar sínar til hans. Síðan les Chase textann sem Brooke skrifaði og bankar uppá hjá henni og segir henni að hann hafi líka tilfinningar til Brooke. Þá kyssast þau. :)

Mouth kemst að því að Jimmy var klipptur útúr mynd sem var í árbókinni og var ósáttur við það. Gigi kemur honum til hjálpar og prentar út mynd sem Jimmy er líka á fyrir árbókina hans (Jimmys). Mouth safnar saman fólki til að skrifa eitthvað fallegt um Jimmy í árbókina. Mouth gefur mömmu Jimmy síðan bókina.

Deb á byssu sem hún geymir í kexskálinni heima hjá sér. Lucas finnur byssuna, fer heim til sín þar sem Karen og Dan eru að borða saman. Hann ógnar Dan með byssunni og það líður yfir Karen. Þegar Dan er að fara að beygja sig niður til að hjálpa Karen hleypur Lucas af skoti þar sem þátturinn endar.
Lastu Þetta?..