Þátturinn byrjaði þar sem hann endaði á föstudeginum þar sem að Lou var að heyra að Patsy var að stela úr húsinu hans, og hann fékk Joe til að skutlast með sér heim og þeir komu rétt svo í tæka tíð til að stoppa hana, en hún var komin í bílinn og var að farað keyra af stað en þeir keyrðu fyrir hana og Joe hélt henni þar til löggan kom. Lou spurði hana af hverju hún gerði þetta en það eina sem hún sagði var: EKKI SEGJA LOLLY!
Madge og Harold voru rosa góð o´g létu Lou fá sjónvarp og Lynn eldaði fyrir hann.
Flick lenti í vandræðum útaf ballinu..hún hafði sagt við Paul að hún hefði beðið Cheianne um að fara með honum af því að henni langaði að gefa þeim annað tækifæri, en hún var raunverulega að gera það til að Joel myndi fara með henni.
Joel sagði við hana að hann kæmist ekki á ballið og Flick var rosa sár…hún spurði alla strákana sem hún þekkti og allir voru komnir með stelpu til að fara með á ballið meira að segja mestu nördin….hún var við Lassiters lake að gráta og Joel sá hana og ákvað að hætta við köfunarhelgina og fara með henni á ballið.
Steph sagði við Libby að hún ætlaði í ferðina og gæti þessvegna ekki verið brúðarmey og Libby var mjög sár.
Allt er að verða brjálað heima hjá Lance og Toady útaf þessum sjö þrautum allönu. Lance á að sanna tilvist geimvera og strákunum finnst þetta vera gengið of langt og hefst mikið rifrildi.
Dionne er flutt inn til Tess og ekki veit ég hvernig það á að ganga því mér finnst Tess vera orðin pirruð á henni strax.
Þetta er mjög óþægilegt fyrir Joel og hann fór í heimsókn til hennar og reyndi að kyssa hana….mjög vandræðalegt.
Karl og Susan eru að rífast um herbergið hans Billy..Susan vill breyta því í lærdómsherbergi…en Karl vill fá stúdíó til að taka upp plötu en það er víst búið að vera draumur hjá honum síðan hann var lítill.
Toadie er að ganga frá Michelle með blaðaburðinum..

Ég man ekki meira í augnablikinu en ef þið munið eftir einhverju endilega bætið inná… : )