Mótmælum öll! Best að skrifa hvað gerist í þættinum í dag úr því að það er engin búin að því.
Hann hljóða svona:

Petsy komst undan Lou þegar hún kom til að skila lyklunum eftir að hún var búin að ræna öllu úr öryggishólfinu hjá honum á Kránni. Þegar Dion kom til að ná í penningana fyrir hárhollurnar þá voru þeir horfnir ásamt uppgjörinu hjá Lou. Þau hringdu í lögguna og hún kom að spurja hinar og þessar spurningar. Auðvitað grunar Lou ekkert með barnfóstruna sína og hann á að koma með lista yfir alla fyrvernadi starfsmenn og láta lögguna hafa hann. Löggan ætlaði svo að taka fingrafara sýni og ath hvort það væri hægt að komast að þessu. Það var allur bærin miðursín yfir þessu ráni og skilja ekki í svona fólki að vera að ræna þessum peningum. Það voru allir með hárkollurnar í dag því þetta var “hárholladagur”. Meira að segja krakkarnir í skólanum og kennarnarnir. Lyn er rosalega dugleg að halda sér í formi og Joe lýst ekkert á þetta. Hann sagði við hana að hann væri ekki búin að vera að púla svona í mörg mörg ár og að hann væri nú samt í rosalega góðu formi. Hann er nú samt alltaf að stelast í tækin þegar engin sér. Lyn skorðai á Joe að koma í keppni um hvort þeirra væri í betri ástandi. Hann ætlar svo að fara bara í sturtu en labbar inn á Dion þannig að það voru öskur og læti inn á baði. Steph leyfði henni að gista í sófanum inn í stofu en það vissu það engin nema Steph. Dion fannst kl vera orðin svo margt kvöldið áður þegar þau voru öll að fagna því að Libby og Drew væru byrjuð saman aftur og hún þurfti að vakan snemma morgunnin efir óg nennti því ekki að fara heim til sín. Mic er alveg viss um það að það sé Petcy sem er búin að vera að ræna þessum peningum og fer til Lou til að segja honum það en hann trúir henni alls ekki og spyr hvort hún hafi eitthverja sönnun fyrir því, sem hún hefur ekki og segir hún honum frá því þegar hún sá Petcy vera að róta í ruslunu að raða saman pinnnúmerinu hans Lou. Enn hann er svo sannalega staurblindur fyrir þessu öllu saman. Patsy talaði svo við Tes um hvort hún væri til í að leigja sér herbergið sem væri laust hjá henni þsví hún væri búin að segja upp hinu og fyrst að Drew væri ekki að fara neitt. Hún vil vera sem næst Lou og Lolly. Með eitthverju hiki játar hún því að lokum. Tess kemur svo heim til Harold og segir að strákarnir hefðu ekki mætt í skólann og Harold skilur ekkert í því. Hann verður rosalega áhyggulaus svo segir Tess að Flick hefði ekki heldur mætt í skólan.

Þannig endaði þátturinn. Ég held að þetta sé ágætt hjá mér. Ég man ekki meira í bili. En ef þú manst það þá lætur þú það flakka.


kveðja
palinas
<img src="