JEEEEEEEEJJJ… LOOOOKSINS!!!

Það var mikið að Libby loksins sá að sér og aulaði út úr sér við Drew að hún elskaði hann og vildi eyða lífinu með honum. Oh ég er svo hamingjusöm (hehehe ferlega klikk). Sá þáttinn í dag fyrir algjöra tilviljun í vinnunni þar sem það var óvenju lítið að gera í hádeginu.

Jæja en allavegana Libby stoppaði sem sagt Drew í að skrifa undir söluna á verkstæðinu og sagði honum að hann mætti ekki fara´því hún elskaði hann. Þetta var náttúrulega þvílíkt happý móment og kyss og knús. Foreldrar Libby urðu álíka hamingjusöm þegar þau komust að þessu og það var önnur kossa-knúsu-sena í kringum það. Svo fóru þau öll á barinn hans Lous að fagna og þar komu Dionne og Steph og sáu strax að þau voru tekin saman. Þær óskuðu þeim innilega til hamingju og Steph greyið bar sig voða vel en stakk svo af og fór heim alveg miður sín.

Nú annað sem gerðist í þessum þætti var að barnapían hans Lous komst að því að Steph og Dionne höfðu beðið Lou að geyma fyrir sig peningana sem söfnuðust í hárkolludæminu (eitthvað um 2000 dollara minnir mig). Hún stal svo lyklunum hans sem hann hafði skilið eftir á borðinu og svo laumaðist hún inn í húsið hans Lous um nóttina þegar hann var sofnaður. Lou vaknaði að vísu (ekki við barnapíuna samt) og kom niður, en pían rétt náði að fela sig og þannig endaði þátturinn.
Kveðja,