Jæja, þar kom að því!! Libby snappaði af því að sjá hvað foreldrar sínir voru happy og ánægð saman og rauk af stað til þess að hindra það að Drew myndi selja sinn hluta í verkstæðinu og flytja burt frá Ramsay-street. Það var þvílík dramatík í enda þáttarins þar sem Libby flýtti sér á verkstæðið, þar sem Drew var á sama tíma að undirbúa undirskrift samningsins. Þátturinn endaði svo á því að Libby óð inn og hrópaði: “Drew, don´t sign it!!!”
He, he,..ég gat nú ekki annað en hlegið að þessu atriði! :)
Svo er bara að sjá viðbrögð Drews, ætli hann sé ekki búinn að gefast upp á ruglinu í henni? Varla verða allir happy núna? Það passar ekki inn í sápuóperuformúluna, eða hvað????