Munu Drew og Libby byrja aftur saman? (Spoiler?) Síðan að Libby og Drew hættu saman hefur maður alltaf verið að bíða eftir því að þau byrji saman aftur. Það hefur þó gengið vægast sagt stirðlega hjá þeim þar sem að Libby hefur verið ótrúlega treg („þrá að sauðkindin en hvað er það á móts við kvenkindina?") og grey Drew hefur verið algjör ruslahrúga síðan að hún lenti í slysinu og nú sér hann ekki annan valkost en að flytja aftur heim til Oakey. Í þættinum í dag ákvað hann meira að segja að samþykkja tilboð í verkstæðið.

Eins og áður sagði hefur Drew ekki verið samur síðan að þau hættu saman og í hvert skipti sem hann heldur að það sé einhver möguleiki á að þau nái saman aftur þá kremur Libby hjarta hans á ný. Í dag fékk hann nóg og spurði af hverju hún léti svona, þau ættu greinilega vel saman og myndu eiga frábæra framtíð, hvort sem þau myndu eignast börn eða ekki, en þau voru einmitt að passa tvö börn.

Hvernig endar þetta allt saman? Mun Drew flytja á brott, eða tekur Libby loksins sönsum og tekur honum aftur? Að mínu mati áttu þau aldrei að hætta saman, þetta er bara bölvuð þvermóðska í Libby, hún hlýtur að átta sig!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _