Hvað finnst fólki um þessa barnapíu hans Lou? Hún virðist vera svo ofurgóð en ég held að hún sé algjör norn, hún er eitthvað svo fölsk greyið. Frá því að hún kom fyrst hefur hún verið að reyna að hafa áhrif á Lolly og nú er hún alveg ákveðin í að flytja inn, og er að reyna að fá Lolly til að sannfæra Lou. Hún ætlar sér inn um leið og ef Drew fer, sem virðist frekar líklegt eins og er.

Í dag vantaði svo 50 dollara í veskið hjá Lou, eða a.m.k. hélt hann það og ég hef lúmskan grun um að barnapían (man ekki hvað hún heitir) hafi hnuplað peningunum. Hún hefur engu að síður reynst Lou og Lolly mjög vel en eitthvað segir mér að það sé allt saman feik og að hún sé djöfullinn í mannsmynd!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _