Það sem gerðist er að Libby og Drew voru að passa þessi tvö börn Emily og strákinn(sem ég man ekki eftir hvað hét =). Drew sagði við Libby að þau gætu átt fullkomið líf saman. Ég held persónulega að þegar Drew er að leggja á stað þá komi Libby og segi að hún sé ástfangin af honum og þau byrji aftur saman. Það sást eitthvernveginn í þriðjudagsþættinum, 30.10 að hún var eitthvað að bráðna fyrir honum. Síðan er með þessa litlu Emily að hún er dálítið utan við sig þarna í þættunum tveimur sem hún hefur verið í. Hún er alltaf að kíkja smá í myndavélina. Það er eins og granna fólkið sem framleiðir þetta, kann ekki að hafa krakkana venjulega. Eins og Lolly, hún er alltaf eins og hún sé eitthvað öðruvísi. En eitt sem mér liggur líka á hjarta, hvað Lance og Karl Kennedy voru ógeðslega ógeðslega hallærislegir þegar þeir voru að leika sér saman að leika Captain Orion. Ég varla séð neitt jafn hallærislegt í þessum þáttum. En allaveganna hvað finnst ykkur?