Leiðarljós 21.11.2006 Cedars:
Blake hittir Amöndu og segir að hún ætli að hefna sín á þessu grikk sem Amanda gerði henni. Amanda ætlar að hringja á hjúkku en Blake reyndir að fá Amöndu til að játa, Blake segir að hún hefði getað komist út því að inni í skúrnum var kúbein og fleira. Ross kemur og lemur á dyrnar, Blake opnar fyrir honum og hann öskrar á Blake hvað í fjandanum hvað hún væri að gera. Amanda kemur fram og segir að ekki reiðast Blake. Ross og Ed hjálpa Amöndu inn aftur en Rick og Blake fara. Ed býður Ross bústaðinn sinn til að róa sig niður.

Lögreglustöð:
Lucy og Alan M. eru að tala við Brent sem er enn að leika Marion og Lucy segir að mamma hans fyrirgefi honum þetta ef hann segi Frank satt og rétt frá, og allir vilji hjálpa honum ef hann gerir það. Brent gefur sig ekki og svo verður A-M reiður og svo koma 2 frá geðdeild og sækja Brent. Geðlæknir fékk dómsúrskurð að Brent sé geðveikur.

Dómshús:
Dómari dæmir að Annie skuli flytja í burtu frá Josh á meðan hann er ekki búin að giftast henni. Allt verður brjálað og dómarinn hótar að dæma Josh fyrir vanvirðingu við réttin, eins að ef hann stillir sig ekki að dæma forsjánna af honum v/ skapofsa. Dómari segir að úrskurður hjá honum er ekki bara v/ vitnisburðar heldur líka vega þess að þetta sé þeim fyrir bestu. Svo eftir dómsuppkvaðningu þá fara Josh og Reva að rífast, Josh rýkur út en Buzz talar við Revu. Lögmaður Revu talar við hana og ráðleggur henni að liggja lágt og ekki hafa samband við Josh. Buzz og Reva tala saman um þessi mál.

Heima hjá Josh og Annie:
Shane og Marah eru að spila og Josh og Annie koma inn. Þau segja þeim hvernig er og Shane fer að gráta, en Annie segir að þau sjáist daglega en hún verði ekki á nóttunni hjá þeim. S og M fara upp og Josh og Annie tala saman. Svo fer Annie og grætur þegar hurðin lokast.

Svíta hjá Dinuh og „Roger“:
Hart kemur og D og hann tala saman um pabba H Roger, og hvað hann hefur verið að gera og að hann sé ekki sendi sveinn hans. Hann fer svo, hún sér undir kjól og tekur hann upp og minnist þegar Hart og hún elskuðust.

Diner:
Frank, Lucy og A-M útskýra fyrir hinum Elanie og Revu og Buzz um málið með Brent. Frank segir að Brent muni leika Marion og svo hætta því, verða fyrirmyndar sjúklingur og svo losna út eftir 2 ár. Þau eru hissa og reið á þessu.