Guiding Light 6.okt'06 Ballið er enn í gangi. Lucy er að dansa við Brent og er að reyna að geta hver hann er, en hann vill ekki segja neitt (auðvitað!). Síðan er paraskiptidansinn búinn og A-M segir Lucy að þetta hafi verið gaur “að taka hana á löpp”. Þau tala saman og og þá hringir Brent í A-M (sem Marian) og segir honum að koma heim til sín að hjálpa sér eftir allt sem hún hefur gert. Hann segir þá Lucy að hann þurfi að skreppa aðeins frá. Eftir að hann fer er sýnt frá manni í alveg eins Zorro búning (sem er Brent).

Á ballinu: Hart segir Roger að það hafi verið hann sem sagði Vanessu að hann hatar hann og vill ekkert með hann hafa. Hart og Bridget eru að dansa þegar Dinah kemur og vill tala við hann. Þau tala og hún segir honum að láta sig í friði.
Síðan kemur hann aftur til Bridget og spyr hvort hann megi kynnast Peter betur, og hvort þau gætu farið með hann á snjósleða hjá býlinu.Hún samþykkir það.

Á ballinu: Amanda og Blake eru í baðherberginu og Blake fer á salernið. Amanda bindur síðan hurðina við eitthvað svo Blake komist ekki út og hún fer. Blake ætlar síðan að fara þegar hún getur ekki opnað hurðina og segir einhverjum að opna fyrir sér.

Susan segir Nick og Frank að halda Marian fjarri Lucy, af því hún vilji reyna að drepa hana einhvernveginn öðruvísi. Frank hrngir í Nell (félagann sinn) og segir henni að nú þurfa þau handtökuheimild. Nell segir að hún hafi ekki hreyft sig, sé örugglega sofnuð. Frank fer að spítalanum.

Hann kemur til Nell í bílinn og þau eru að tala saman þegar Levy kemur með heimildina. Þau fara inn og sjá “Marian”. Frank sér síðan að þetta er bara gína eða eitthvað með hárkollu og þá fatta þau að hún er farin. A-M kemur og er að leita að Marian. Frank segir honum að Marian hafi ekki ætlað að drepa Susan, heldur Lucy. Þá segir A-M þeim frá símtalinu og fattar að hún hafi blekkt hann. Frank og A-M hlaupa af stað á ballið.

Josh segir Annie að hann hafi fundið fyrir einhverju, en ekki ástríðu, heldur að kossinn hafi ekki meint neitt og hann hafi fundið bara að kossinn væri rangur og eitthvað þannig. Annie var ekki að trúa því en Josh sagði henni að hann elskaði hana en ekki Revu. Þau kyssast síðan.

Alan segir að nú sé nóg komið, hann nennir ekki að vera hér lengur, er með tösku og alles. Þau rífast og Reva segir frá mikla rifrildinu milli hennar og Josh og að hann kallaði hana druslu og væri skítsama um hana. Alan var alveg sama um það og var á leiðinni út þegar hún segir honum að stoppa, fer úr fötunum og segir eitthvað en ef hann myndi fá hana. Hún klæðir sig úr fötunum, hann snýr við og þau kyssast.

Á ballinu: Það er að koma miðnætti og Lucy er áhyggjufull um að A-M ætli ekki að fara að koma. Síðan kemur Zorro (Brent) og Lucy heldur að það sé A-M náttlega og þau fara út á veröndina. Fólkið er að telja niður, 14, 13, 12… og það er flugeldasýning úti. Lucy er að horfa á sýninguna og þá kyssir Brent Lucy og hún fattaði að þetta var ekki A-M. Hún renyir að fara í burtu en hún sleppur ekki. Síðan endaði þetta bara þannig að hún öskraði ,,HELP! HELP ME! SOMEBODY HELP ME!!!!!

The end!

Það verður spennandi að sjá mánudaginn;)