Leiðarljós 12. sep. 2006 Þetta er það sem gerðist í Leiðarljósinu í dag.

Hús Josh:
Allir eru að undirbúa brúðkaup Josh og Annie.
Vanessa og Annie og Marah eru í húsinu. Marah er að gefa Annie gjafir Eitthvað blátt, gamalt og lánað. (Brúðkaupsiður í US)
Josh er að laga vélina fyrir hringekjuna, og gengur hálf illa, á meðan er Matt að semja fyrir Josh.
Svo koma gestirnir Bill og Henry og Nola og Bridget og allir. Bill sér Michelle og knúsar hana og þau tala saman, Nola og hún kann á svona vélar og lagar hana . Svo sér Nola Michelle og langar að tala við hana en hún getur ekki talað við Nolu því að hún var búin að lofa að hjálpa Elanie með matinn.

Diner Meals on Weels.
Alexandra er að suða í Buzz um Rebekku/Revu Hver hún er og svona. Hún sér myndavélina og spyr Buzz um myndband og þau skoða það og þá sér hún Revu dansa og bregður að sjá Revu Shane.

Í flugvél Alans:
Alan leiðri Revu sem er með bunið fyrir augun og segir henni að henda pítu á kort og þangað skulu þau fara. Ef hún hittir í sjóinn þá fara þau í siglingu. Hún hittir á Amazon. Hann segir að þótt hann elski hana ekki þá verður hann besti vinur hennar, og eins ef hún vilji fara annað þá hendir hún píluni aftur.

Boarding House:
Allir eru að taka sig til fyrir brúðkaupið og Lucy er að fara út að borða með Alan-Michael. Marion/Brent hringir í hana og segir að Brent hafi átt vinkonu sem vann í gangdeildinni og var tölvuþrjótur og hafi brotist inn í skýrslu Lucy og breytt niðurstöðum. Marion vill tala við Lucy en hún segir að hún sé upptekin. Það fara allir en Lucy er að fara í sturtu, Marion er að snigglast kringum húsið og fylgist með þegar hópurinn fer. Hún fer inn slekkur ljósið (Segir betra að vera örugg) svo tekur hún upp hníf og ætlar að nota hann en skiptir svo um skoðun og nær í kjötsax og fer upp. Þar er Lucy að fara í sturtu og Marion læðist upp. Maður heyrir jólalag og svo klasíkst verk og Marion fer inn í baðherbergið og rífur frá sturtuhengið og þá kemur að þetta er Susan Kærasta Nick.

Nú verður spennandi hvað gerist. Drepur Marion Susan eða ???

Allt um það á morgun

This Has Been Guiding Light.
ATH.
Þetta er eingöngu fyrir fólk sem hefur gaman að fjalla á jákvæðan hátt um Leiðarljós.