Jæja þetta byrjaði í dag með að Connor og Serena voru að drukkna, Serena var eitthvað að biðja hann að segja mömmu sinni og pabba sínum að hún elskaði þau og eitthvað.
Svo dottar Connor og þegar hann vaknar þá er Serena farin og hann fer að synda og leita af henni.

Á meðan var allt brjálað í áhyggjum heima hjá Lyn, Lyn var reyndar ekki heima en Joe og Janelle voru grátandi, svo kom Lyn in með Rachel og Zeke og Joe segir Lyn þetta en þau ákveða að segja ekki Rachel og Zeke um flugslysið.

Allir fara heim til Harolds og bíða eftir fleiri fréttum af flugslysinu, Það kemur í fréttunum að Paul Robinson hafi bjargast.

Svo sést þegar Connor hefur skolast upp að landi og hann vaknar þar, sér Dylan þar og þeir bíða saman á ströndinni.

Það kemur svo seinna í fréttunum að einhverju fólki og Sky Mangel og Alex pabba Rachel og Zeke hafi verið bjargað.

Connor og Dylan heyra í þyrlu og Connor ætlar að hlaupa og veifa í þyrluna en Dylan stekkur á hann og stoppar hann, þeir ákveða svo að fyrst að þeir höfðu ekki neitt lengur til að lifa fyrir (þeir héldu að Serena og Sky væru dánar) að þeir ætluðu ekki að láta bjarga sér og þykjast vera dánir, þar sem þeir voru báðir á leiðinni í fanglesi og svona.

Svo er Izzy bjargað og Karl verður reiður og segir eitthvað um að fólk eins og Izzy lifir af en samt ekki Susan, Harold verður reiður og prédikar yfir öllum.
Svo segir Karl Rachel og Zeke þetta og að pabbi þeirra sé á lífi en þeir vita ekki um Susan og þannig.

Þetta er kannski ekki rosalega vel sagt frá né stafað en þetta er það sem gerðist .. :D