Eins og kannski sumir vita missi ég oft af Grönnum núorðið vegna skólans, en í gær var ég svo heppinn að sjá þá, og mikið var þetta nú skemmtilegur þáttur! :)

Þátturinn gekk mikið útá vandræði Joels og Dione (eða það minnir mig!) en eins og sennilega flestir muna bað Joel hennar fyrir stuttu en hún sagði nei takk en ákvað svo að grínast aðeins í honum og sagðist vera búin að skipta um skoðun, og Joel greyið fór alveg í hnút, og fannst þetta bara ekkert fyndið!

Í gær ákvað hann hins vegar að hefna sín á Dione og fékk sér gervitattú (eða límmiða) þar sem nafnið hennar var. En Dione var hins vegar mikill tattú aðdáandi og ætlar núna sjálf að fá sér tattú með nafninu hans Joel (getur verið að hún hafi gert það í þættinum í dag).

Einnig kom í ljós að Joe Scully er með tattú og Joel sagði við hann að bara “meatheads” fengju sér tattú, Joe var ekki ánægður en spurði svo hvort að Joel væri ekki sjálfur “meathead” þar sem hann er sennilega á leiðinni að fá sér tattú!

Já þar kom Joel sér sko aldeilis í klípu!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _