Michelle Ég man eftir því fyrst þegar Scully fjölskyldan kom og Michelle leit dagsins ljós..
Mikið afskablega var greyið stelpan leiðinleg, enda allt allt of ofdekruð. Hún var augasteinn pabba síns og gerði í því að klaga systur sínar og stela fötunum þeirra. Típísk leiðinda systir bara.
En það kom líka niður á henni seinna meir þegar allur skólinn snérist gegn henni og hún var lögð í einelti..
Hún varð hrifin af Paul og auðvitað þoldi hann hana ekki.. Hún gat fengið foreldra sína til þess að borga honum til að kenna henni á gítar.. en auðvitað hafði hún meiri áhuga á kennaranum en gítararnum.
En nú er eins og hún sé orðin bara allt annar persónuleiki.. Það er farið að vera bara virkilega gaman að henni, hún kemur með góða smelli og er ekki svona afskableg leiðinleg.
Er þetta bara rugl í mér eða hefur hún breyst til muna?