Guiding Light 24.ágúst 2006 Lucy og Alan-Michael komu inn á Spaulding Interprises og þar var Marian/Brent að gráta og sagði að Cutter hefði verið drepinn. Luce spurði hver gerði það og Marian/Brent sagði að það hefði verið Marcus Williams. Þau trúðu því ekki og Lucy sá eftir að hafa ekki verið hjá henni þegar það gerðist. Síðan kom Nick og spurði hvort þau hefðu séð Susan, en öll sögðu þau nei, en A-M sagði að hún gæti verið inná skrifstofu hjá Alex. Nick fór þangað. Þá voru LAM og Marian/Brent eftir. Luce og Marian fóru á klósettið.


Susan sagði Alex að hún og Nick væru ástfangin og vildi bara vita hvað henni fyndist um það. Hún sagði að hún væri náttlega hrædd útaf HIV-inu, en sagði síðan að henni líkaði vel við hana og þær fóru að hlæja. Nick kom inn og spurði hvað væri svona fyndið. Þær vildu ekki segja neitt. Síðan fóru þau fram og Susan sagði að henni líkaði við Alex.


Alan hleypti Buzz inn og Buzz kallaði á Rebeccu/Revu. Buzz spurði hvar hún væri en Alan vildi ekki segja honum það og sagði honum að ef hún er að gera núna það sem hún ætlaði að gera, myndu þeir báðir missa hana.


Reva sagði síðan nafnið hans Josh: ,,Joshua“ lágt þegar hann hélt að hann væri orðinn klikkaður. Síðan komu Annie og börnin og fóru að tala saman og börnin fóru að horfa á mynd heima sem heitir ”Litla Prinsessan“. Reva horfði á Annie og Josh meðan þau játuðu ást sína á hvort öðru. Síðan kom Marah og sagði að konan í myndinni var vond. Annie og Josh fóru. Reva fór að skoða sig um þegar Marah sá hana og sagði: ,,Mommy?”

Vona að ég gleymdi engu:)