Jæja, fyrir ykkur sem misstuð af Nágrönnum í dag, þá tók ég saman það sem gerðist í þættinum, þó það hafi nú ekki verið mikið.

Byrjum á málunum milli Joe og Janelle

Í byrjun þáttarins er Joe að lesa bókina sem Janelle skrifaði, án hennar vitundar. Bree kemur heim, og segist vera lasin. En Janelle sér í gegnum hana, Zeke var ástæða þess að Bree kom heim úr skólanum. Janelle lætur nokkur ill orð falla um karlmenn. Joe verður nokkuð fúll, og Janelle og Joe þræta. Eftir að þær fóru, laumaðist Joe í tölvuna, hann ætlaði sko að hefna sín á henni. Hann sendi bókina sem Janelle hafði skrifað, til allra í bænum.

Þegar Karl, Max og Lou sjá söguna, verða þeir virkilega fúlir. Þar sem sagan er nokkurnveginn um fólkið í Ramsey götu. Karl verður svo reiður yfir þessu, að hann var á því að kæra Janelle. Joe kemur að þeim vera að tala um þetta, og bendir þeim á að Janelle er út á hárgreiðslustofu, þar gætu þeir spjallað svolítið við hana.

Karl, Max og Lou mæla sér móts við Janelle, hún viðurkennir að hafa skrifað þetta, en hún afsakar sig með því að þetta hafi eingöngu verið skáldskapur, og bætir því við að ætlunin hafi ekki verið sú að þeir læsu þetta. “Ekki nógu mikill skáldskapur” segir Max þá. Lyn reynir að róa þá niður og segir að þetta hafi allt verið í gríni gert. Janelle uppgötvar svo að það hafi verið Joe sem sendi söguna til allra. Hún brjálast og hleypur á eftir honum um bæinn með skærin í hendinni.

Þeirra mál í þættinum enda svo með því að Lyn leyfir Janelle og co. að flytja aftur inn.

Mál Susan og Alex

Rachel og Zeke gangast á tal við Susan og spyrjast út í hvort eitthvað sé að á milli Alex og hennar. Susan neitar öllu, og segir að þetta hafi bara allt gerst of hratt. Rachel heldur samt að það sé eitthvað alvarlegra að en það, eitthvað sem þau mega ekki vita.

Susan segir Alex að hún eigi erfitt með að ljúga af krökkunum. Spyr Alex út í hvort hann ætli ekki að fara segja þeim þetta. Hann segist ætla að bíða með það, þangað til að hann fengi upplýsingarnar frá Karl um hversu ‘langt hann á eftir’.

Alex og Karl hittast í garðinum og ræða um hversu langt Alex á eftir. Í enda þáttarins fer Alex heim til Susan og segir henni fréttirnar. Hann segir þær vera góðar. Susan létti við það, og hann segir henni að hann það sé ekki lengur talið í vikum hversu langt hann eigi eftir.

Mál Bree og Zeke

Eftir að Bree kom heim ‘veik’ úr skólanum, stingur mamma hennar upp á ráðabruggi til að Bree fái að eyða smá tíma ein með Zeke.

Bree fer aftur í skólann og Zeke reynir að tala við hana. Hún hundsar hann. Zeke gefst upp á því að reyna að tala við hana og réttir henni miða, rétt eins og Janelle bjóst við. Bree tekur upp annan miða, les hann, stendur upp og kallar hann illu nafni. Kennarinn verður reiður og Bree sýnir kennaranum miðan. Kennarinn setur þá Zeke í eftirsetu. Bree var samt ekki hætt. Hún segist vera orðin þreytt á því að horfa á feita rassinn á kennaranum hossast um í buxunum. Þannig fékk hún eftirsetu, og þar með smá tíma ein með Zeke.
Í eftirsetunni reynir Bree að tala við Zeke, en hann vill ekkert við hana tala. Var verulega fúll yfir því að hún skyldi koma honum í þetta. Spyr hana út í hvað hafi staðið á miðanum sem hún lét kennarann fá. Það var eitthvað um hvort hún vildi koma að kela við hann. Hann segist ætla að segja kennaranum frá því að þetta hafi verið lygi hjá henni, en hættir við, þar sem kennarinn mun sennilega ekki trúa honum.

Man ekki eftir fleiru sem gerðist í þessum þætti. Vonandi hjálpaði þetta einhverjum sem missti af þættinum í dag.
(Afsakið stafsetningarvillur ef það voru einhverjar)