Það sem gerðist í þættinum í dag.

Orestes og Bella komust úr fangelsinu, vegna skorts á sönnunum. Orestes var enn viss um að Bella væri Valentina og tók ekki annað í mál. Franklin og Jordi eru vissir um að Orestes er Silfurliljan og þeir ætla að elta hann hvert sem hann fer. Þeir fóru á kránna Orestesar og töluðu við José og hinn (mann ekki hvað hann heitir) og fundu svo peningahólfið sem Silfurliljan notar. Það var tómt þannig það komst ekkert upp.

Jordi hitti Pandoru í fangelsinu þegar hún kom að ná í Orestes. Hann bað hana fyrirgefningar og allt það en hún sló hann utan undir og vill ekkert með hann gera. Hún lokaði hann inn í klefanum :')

Lorenzo sá Román og Ariödnu saman og brjálaðist. Þeir fóru að slást um hana en Ariadna fór því hún sagðist ekki vera einhvers eign.

Camelia hitti Franklin og bað hann um að gefa Chiqui smá séns. Hún vildi endilega að Franklin og hún myndu sættast en Franklin vildi það ekki. Hann vissi líka að það var Lorenzo sem sendi mennina til að berja hann.

José og Tza Tza kysstust :D mér finnst þau svaka sæt saman. Vissi samt ekki að hann væri svona hrifinn af henni. Þegar Bella kom heim og sagði þeim söguna afhverju hún fór í fangelsið, sagðist José ætla að láta Olimpiu játa morðið. Hin urðu forvitin hvernig hann ætlaði að gera það, en hann sagði ekkert.

Valentina Villanueva kom aftur. Orestes var geðveikt mikil sleikja við hana, og allir trúðu því að Valentina og Bella væru ekki sama persónan.

Pandora var hneyskluð við Aquiles, eða það sem hann gerði við Ninfu. Hún var viss um að það væri ekki satt það sem sagt væri um hana heldur.

Mamma Beatriz & Franklin, og Tza Tza fundu bréfið um rannsóknina sem pabbi Valentinu lét gera á Olimpiu. Þar stóð allt um að Olimpia væri í raun Maria Joquina og að hún hafi verið í sambandi við José Manuel Sevilla.

Þetta gerðist í dag ;) eins og í gær gæti verið að ég gleymdi einhverju. Endilega segja mér ef svo er :D