Það gerðist svo margt spennandi í þættinum í dag ! Ég held að serían sé að verða búin.

Orestes og Bella eru í fangelsli. Orestes fyrir að vera grunaður sem Silfurliljan, og Bella fyrir að verða grunuð um morðið á Gomez dómara. Bella er reið Orestes fyrir að vilja ekki giftast sér því hann lofaði Chiqui að standa með henni og barninu. Bella vill helst bara komast yfir hann. Þau eru á móti hvoru öðru í fangaklefa (týpískt:).. Olimpia kom svo í fangelsið og sagði að hún hafi svæft Bellu og tekið fingraför hennar. Svo hafði hún farið með þau til Gomez dómara og beðið hann um að skoða þau og sanna að Bella væri Valentina. Hún sagði líka að Bella hefði komist að því og þess vegna drepið Gomez. Orestes trúði þessu ekki fyrst en svo trúði hann því og varð alveg brjálaður. Mér finnst það geðveikt skrýtið því hann er nú Silfurliljan og Bella veit það ekki ! :/ Svo komu Ariadna og Román í heimsókn, og Román sagði Orestes hvernig Bella hefði talið hann á að hætta við brúðkaup þeirra Ariödnu. Þá varð Orestes náttúrulega enn brjálaðri.. Þau voru eiginlega að rífast allan þáttinn þannig það er ekki mikið að segja meira frá þeim. Nema, Bella vildi sanna að hún væri ekki Valentina. Hún fékk Beatriz til sín og sagði við hana að nú væri komið að því, Valentina átti að koma. Beatriz og Tza Tza fóru á skrifstofu Bellu og náðu í búninginn.

Aquiles og Ninfa voru búin að sættast og þau höfðu brúðkaupsnóttina sína þetta kvöld. En eftir að þau voru búin að “hafa mök” (haha:D) sagði Aquiles Ninfu að hann væri bara að spila með hana eins og hún gerði við hann. Það var náttúrulega bara lygi, Olimpia svæfði Ninfu og fékk einhvern perra nauðga henni, og tók myndir af þeim til að sýna Aquiles. Hann náði í perrann og sagði að sér væri alveg sama hvað hann myndi gera við Ninfu, og fór út úr herberginu. Perrinn ætlaði að nauðga henni en Benigno heyrði í þeim og stoppaði þetta allt.

Olimpia barði Chiqui þegar hún sagði henni að Orestes ætti ekki barnið, og hún kom öll út í blóði heim til sín. Mamma Chiqui varð náttúrulega hrædd um hana og spurði hver gerði þetta, en Chiqui neitaði að segja henni. Pabbi hennar kom svo og kom upp um sig að hann lét berja Franklin. Chiqui varð náttúrulega vitlaus og kom upp um sig að hún hafði sofið hjá Franklin. Pabbi hennar varð brjálaður og ætlaði að slá hana en mamma hennar kom fyrir það. Chiqui sagði að pabbi hennar væri ekkert skárri, alltaf haldandi fram hjá mömmu sinni og þá varð hann ennþá reiðari.

Eins og sagt var, þá var Franklin barinn. Nokkrir gaurar og Roque réðust á hann á bílastæðinu hjá Lögreglustöðinni og sögðu við hann að það ætti ekki að abbast upp á gifta konu. Hann náði samt einhvern veginn að koma sér heim og mamma hans þreif sárin. Chiqui kom svo í heimsókn, en mamma Franklins ætlaði sko ekki að hleypa henni að syni sínum. Franklin sagði samt mömmu sinni að það væri allt í lagi, hann væri að fara að tala við Chiqui í seinasta sinn. Hann sagði henni að hann vildi aldrei sjá hana aftur og svo framvegis, en ég held að Chiqui hafði komið til að segja honum að hann ætti barnið.

Beatriz og Alejandro kysstust loksins. Hún hefur verið hrifin af honum geðveikt lengi og hjálpað honum síðan hann greindist með HIV.

Þetta er það sem gerðist :) Ég vona að ég sé ekki að gleyma einhverju !