Lögreglustöð:
Levy er að yfirheyra Marcus vegna morðsins á Cutter. (Hann dó í síðasta þætti) en hann neitar öllu. Dinah fær að tala við Marcus og hann kennir henni um að hafa svikið sig. Fletcher og Holly koma þarna og ræða um þetta mál. Roger talar við Levy og nefnir að Marcus er á sakaskrá í Evrópu, og lætur hann hafa nokkur númer til að ath. Fletcher fær að tala við Marcus og bendir honum á að tala. Hann segir honum að Cutter hafi beðið hann að taka hnífinn úr. Svo tala Fletcher og Holly um Marcus og Fletcher trúir því ekki að Marc sé sekur og hringir í pabba hans.

Cedars:
Annie les í blaðinu um dauða Cutters og Rick og Annie tala saman. Alan og Reva koma til að hitta Abigail, Abi tala um kveldið en mamma Abigails Charlotte er reið út í Rick út af því að hann tók Abi, með sér út. Reva felur sig þegar Annie kemur að sækja Abi. Rick reynir að útskýra þetta fyrir hana, en hún vill ekki hlusta. Hún vill að strax og Abi er komin úr aðgerð að hún vilji fara heim. Rick reynir að útskýra að Abigail geti átt gott líf og lært táknmálið almennilega en ekki bara þetta einfalda. Charl. segir að koma ekki nálægt henni og Alan er sama sinnis. Reva kemur fram og Charl. spyr hví hún er svona varkár um sig. Hún útskýrir það.

Diner:
Roger og Dinah eru að fara að snæða morgunverð og Roger er ætlar að kenna henni um viðskipti þau ræða um hana sem hluthafa í WSPR sjónvarpsst. þá sér hún fréttina um Marcus og kennir sér um að hafa svikið hann. Hún vill fara á lögreglustöðina og borga hann út en Roger segir að hún geri bara illt verra. Þau fara. Alexandra kemur og talar við Buzz um Revu og Alan. Hún vill fá að vita hvar Rebecca/Reva er og svo fer hún að leita að henni. Hún reynir að tala Charl. til um að hlusta á Rick.

Jólamarkaður í vöruhúsi.
Josh og krakkarnir eru að jóla versla. Josh missir myndina af Revu og Shayne tekur hana upp og segir að þetta sé konan sem hræddi hann í garðinum. Josh trúir því ekki og Marah segir að það sé bull. Josh ræðir við hann um að þetta sé í minningunni. Reva er þarna og sér þau saman, Buzz kemur og talar við Revu. Annie kemur og þau láta taka mynd af sér, Shanye sér Revu og segir að þetta sé hún. Josh spyr hvort hann sé viss og hann játar því. Josh kallar á eftir Revu og hleypur eftir henni hún er að reyna að forðast hann - - - - -

This Has Been Guiding Light

ATH.
Þetta er eingöngu fyrir fólk sem hefur gaman að fjalla á jákvæðan hátt um Leiðarljós.