Brooke Davis // Sophia Bush // One tree hill Ég hef ákveðið að skrifa grein um Brooke Davis sem er leikin af Sophiu Bush, úr mínum uppáhaldsþáttum, One Tree Hill.

Brooke er rík, vinsæl klappstýra í Tree Hill High.

Í fyrstu seríu byrjuðu Brooke og Lucas Scott saman en hann hélt fram hjá henni með Peyton, bestu vinkonu Brooke. Eftir það hataði Brooke Lucas og Peyton. (Og þau voru einmitt manneskjurnar sem henni þótti vænst um. En svo sættust Brooke og Peyton þegar Lucas hélt fram hjá Peyton með Nikki, sem er einmitt barnsmóðir Jake. En svo sættust Brooke og Lucas aftur og urðu góðir vinir.

Í byrjun annarar seríu byrjar Brooke með Felix. Á meðan kemst hún að því að Mouth (tölvunördinn í skólanum) er ástfanginn af henni. Svo hættir hún með Felix og hann fer í herskóla. Svo kemst Brooke að því að foreldrar hennar þurfa að flytja til Kaliforníu. Það verður mikið vandamál þannig að Karen (mamma Lucas) og Lucas taka sig saman og bjóða Brooke að búa hjá Kareni þangað til skólanum lýkur :). Í endann á annari seríu fer Brooke yfir sumarið til foreldra sinna í Kaliforníu og þegar hún er að fara, segir Lucas að hann elski hana.

Í þriðju seríu fattar hún að hún er ástfangin af Lucas en þorir ekki að verða særð aftur þannig að hún segir að þau séu ekki eingöngu með hvor öðru. (Að þau megi deita aðra líka.) Þegar þau hafa eiginlega komist að því að þau vilja bara vera með hvort öðru, kemur Lucas að Brooke og Cris Keller saman í rúminu. Lucas var frekar reiður útí hana dáldið lengi en svo útskýrði Brooke fyrir honum að hún var of hrædd við að komast of nálægt honum. Svo urðu þau aftur saman og voða, voða ástfangin.

Og í endann á þriðju seríu segir Peyton Brooke að hún sé ástfangin af honum. Og Brooke varð brjáluð út í hana og sagði að hún myndi aldrei tala við hana aftur og henni væri alveg sama ef hún myndi aldrei tala við hana aftur.

Svo í endann á þriðju seríu gæti Brooke verið ólétt.

Brooke er ekki horrengla eins og flestar aðrar í þessum þáttum, hún er venjulegri og þess vegna varð hún uppáhaldspersónan mín í OTH.
Lastu Þetta?..