My Sweet Fat Valentina//Persónur Jæja þá ætla ég að gera grein um þessa spænsku þætti. Söguþráðurinn er langur og flókinn , það tæki mig langa stund að skrifa hann allan þannig ég ætla frekar að gera persónugreiningar. Margir átta sig ekki alveg á söguþræðinum en kanski hjálpar þetta eitthvað.
*Valentina Villanueva / Bella De La Rosa-
Valentina flutti í hús Villanueva fólksins því móðir hennar dó. Hún bjó þar í æsku og á húsið , en Olimpia vildi ekki að hún fengi það þannig hún eitraði fyrir henni. Valentina sneri aftur sem Bella De La Rosa , grönn , ljóshærð og falleg. Hún ætlar sér að ná húsinu af Olimpiu og koma henni í fangelsi.
*Juan Ángel Villanueva-
Föðurbróðir Valentinu. Býr á Villanueva setrinu og er eiginmaður Olimpiu og faðir barnanna þeirra.
*Olimpia Mercouri De Villanueva-
Eiginkona Juan Ángel og Valentina telur hana hafa myrt foreldra sína. Hún er algjör krimmi og er alltaf að gera eitthvað á Valentinu / Bellu hlut.
*Orestes Villanueva Mercouri-
Sonur Olimpiu og José Manuel (heldur að faðir sinn sé Juan Ángel). Varð ástfanginn af Valentinu og er ástfanginn af Bellu þó hann sé giftur. Hann er Silfurliljan, sem er líkt við Hróa hetti en hann tekur peninga frá ríkum og gefur fátækum og veikum börnum. Silfurliljan var nafn á báti sem gerði það sama.
*Ariadna Villanueva Mercouri-
Dóttir Olimpiu og Juan Ángel. Alger tík (hefur það frá móður sinni) og er alltaf leiðileg við Bellu / Valentinu. Besta vinkona Chiqui en hún er samt að dúllast með pabba hennar. Ætlaði að giftast Román en sem betur fer spillti Bella því.
*Aquiles Villanueva Mercouri-
Sonur Olimpiu og Juan Ángel. Hann er að fara að giftast Ninfu, þernu sem vinnur á heimili þeirra. Hann þolir ekki móður sína.
*Pandora Villanueva Mercouri-
Dóttir Olimpiu og Juan Ángel. Hún er eitthvað geðbiluð en samt ekkert mikið. Hún er búin að flýja heimili sitt og þykjast vera Hugo, út af móður hennar sem hún hatar. Hún er í sambandi við Jordi.
*Tza Tza Lanz-
Móðursystir og góð vinkona Valentinu. Er hóteleigandi og hatar Olimpiu, því hún veit að Olimpia drap Evu, systur sína, móður Valentinu. Er eitthvað hrifin af Juan Ángel ;)
*Chiquinquirá Lorenz Rivero-
Ættleidd dóttir Cameliu og Lorenzo. Gift Orestes og er ólétt eftir Franklin, en lýgur að Orestes að þetta sé hans barn, til að bjara hjónabandi þeirra. Olimpiu líkar vel við hana.
*Lorenzo Lorenz-
Faðir Chiqui, skilinn við Cameliu og ætlar að giftast Ariödnu. Hann hafði alltaf verið ótrúr Cameliu, með nokkrum ungum konum. Góðvinur Villanueva fjölskyldunnar.
*Camelia Rivero de Lorenz-
Móðir Chiqui. Hún veit hver Silfurliljan er, og hjálpar honum stundum.
*Ninfa-Þerna á Villanueva setrinu og trúlofuð Aquiles. Góð vinkona Valentinu og Bellu.
*Jordi Rosales-
Er lögregluþjónn og vinnur með Franklin. Býr á hótelinu hjá Tza Tza og er með Pandoru.
*Franklin Carreño-
Lögregluþjónn og býr á hótelinu hjá Tza Tza. Það hefur verið eitthvað á milli hans og Chiqui en hún gengur með barn hans.
*Román Fonseca-
Ætlaði að giftast Ariödnu en Bella fékk hann til að hætta við það til að hlífa Ariödnu frá honum. Hann er glæpamaður og hefur síðan þá reynt að nauðga Bellu.
*Segundo Villanueva-
Frændi Valentinu (eða afi hennar? Ég er ekki viss) Hershöfðingi sem býr á Villanueva setrinu og veit að Bella er Valentina. Hatar Olimpiu og hefur reynt að drepa hana.
*Roque Juliá-
Vinur Olimpiu og fremur með henni alla glæpi. Fórnar sér fyrir hana og sat í fangelsi fyrir hana. Vann á bátnum Silfurliljan.
*José Manuel Sevilla-
Faðir Orestes og var lengi með Olimpiu. Átti bátinn Silfurliljan og þar voru þau Roque og Maria Joquina (Olimpia).
*Beatriz Carreño-
Systir Franklin og býr á hótelinu hjá Tza Tza. Er snyrtikona og veit að Bella er Valentina.
Vonandi er ég ekki að gleyma einhverjum, samt nokkuð viss um það. Endilega gefa sanngjarnar skoðanir ;)