Váááá.

Ég var reyndar búin að sjá þáttinn og hef verið að bíða með að skrifa um hann.

Byrjum bara á því að Peyton er ástfangin af Lucas.. hvað er að ?? Ég held samt að Peyton komist yfir Lucas og Brooke og hún sættast aftur.

Svo er Karen ólétt :/ og ég fattaði ekki þetta með að Dan ætlaði að styðja hana eða eitthvað svoleiðis, ætlaði hann að vera pabbi barnsins í staðinn fyrir Keith eða?? Hann stóð sig nefnilega ekkert sérstaklega vel í uppeldi eldri barna hans þannig að ég var ekki alveg að ná þessu!

Svo er Rachel, Haley eða Brooke ólétt :S Ég held að Rachel var að ljúga að Cooper að hún væri ólétt svo að hann væri lengur með henni. Svo held ég að Haley sé ólétt en ég hef líka grun um að Brooke sé ólétt maður verður samt bara að bíða og sjá..!

Ég held svo að Cooper og Rachel deyja en Nathan nái að fara úr bílnum og synda upp!

Svo held ég að Dan fremji sjálfsmorð af því að hann sá svo eftir því að hafa drepið Keith.

(Ég hef ekki séð neitt, bara mínar hugsanir eftir að hafa séð þáttinn!)

Svo held ég að skjár 1 sýni 4. seríu eftir áramót. (Hún byrjar í nóvember 2006 í usa)
Lastu Þetta?..