Skrifstofa Ross:
Vanessa, Ross, Amanda og Matt eru þar. Ross og Vanessa tala saman. Amanda og Matt rifja upp gamla tíma í Malibu en hann vill ekkert með það hafa.
Vannesa og Ross fara og Amanda biður Ross um hjálp, hann segir að hann geti gert það sem hún á rétt á. Blake kemur og Amanda fer. Blake er ekki sátt við að Ross hjálpi henni en hann sannfærir hana um að þetta sé bara þetta eina skipti. Ross spyr um rannsóknir Hollyar með barnið og hún segir allt gott. Blake vill fara í rannsóknir til að vita hvort ekki sé allt í lagi. Ross samþykkir það og ef allt kemur vel út mun hann líka fara.

Spaulding Enterprises:
Alan Michael horfir á mynd af Lucy, Alexandra kemur inn og vill að hann hjálpi sér með Alan og Amöndu. Hún segir að hún hafi ráðið lögfræðing til að komast að því að Alan sé geðveikur. Þau ræða um að Amanda sé að flytja inn og hvað hún ætli að gera. AM segir að hann vilji ekki blandast inn í þessa valdabaráttu. Amanda kemur og spyr hvort hún geti fengið vinnu. Hún rökstyður ákvörðunina og AM samþykkir með fyrirvara ein Alex að ef það gengur ekki þá er hún farinn. Amanda samþ. það.

Hjá Josh og Annie:
Þau eru saman upp í rúmi og elskast. Svo man Annie að hún var búin að lofa að finna hrekkjavöku búning handa Möruh og Shane. Þau stökkva upp og koma svo með 2 en M og S vilja þá ekki. Svo Josh fer með krökkunum upp á háaloft og sækir kistu og þau gera Pokahontas búning og ofurmanna. Matt er eitthvað utan við sig og svara Vanessu ekki.

Goshen:
Reva kemur ask vaðandi inn og segir að hún eigi krakka í Springfield og er að fara þangað strax, Alan mun fara með henni. Hún byrjar að pakka, hún vill taka Abigail með sér og Abilgail vill það en mamma hennar er ekki viss að hún eigi að fara ein svo Reva spyr því kemur þú ekki með. Mamma Abi er ekki viss en Reav segir að henni að spyrja Max pabba hennar Abigeils. Hún fer og tala við pabba Abi. Alan spyr hvernig hún (Reva) ætli að hitta krakkana svona 1-2-3 eða ? Hún segir honum það sem hún hafði í huga að tala við Josh og svo Mörhu og Shane en Alan telur það ofan af henni því að Josh er komin með nýja konu og krakkarnir hafa verið án móður í 5 ár. Að hún geti ekki bara dúkkað upp svona. Reva rifjar upp hvernig þau voru þegar þau voru lítil en Alan segir henni að hugsa um hvernig hún ætli að gera. Hann segir að hann vilji hjálpa henni.
Hann mun finna Abilgail og mömmu hennar hún og ganga frá hlutum og svo sækja hana. En hún vill fara strax og hann samþ það. Max kemur inn og gefur samþ. að Abigail og mamma hennar megi fara. Max fer að gera kerruna klára og Reva segir Alan að hjálpa honum. Hún fer út og maður sér hana labba og hugsa um þann tíma sem hún var í Goshen og biður guð um að sýna sér ljós um hvað næst.

This Has Been Guiding Light

ATH.
Þetta er eingöngu fyrir fólk sem hefur gaman að fjalla á jákvæðan hátt um Leiðarljós.