Leiðarljós 17.7.06 Hjá Josh:
Marah kemur niður með dúkkuna sína og Hawk kemur á eftir með hafnarboltakylfu. HEldur að þetta sé innbrotsþjófur. Svo þegar hann sér hana þá fer hún að tala um mömmur. Hawk og Marah tala saman um þetta mál og þau leysa þetta mál og fara fram og fá sér kex og mjólk.

Einkaflugvél Lewis Oil:
Josh hringir í Vanessu og lætur hana vita, um að hann sé á leiðinni til Mexico að sækja Annie.

Kofi í Mexíco:
Rick og Annie kyssast í rigningunni, þau tala um gömlu dagana þegar þau voru gift.
Josh kemur inn og segir að hann elski hana og biðst afsökunar að hann hafi verið þessi hálfviti, og bíður hennar. Hún tekur bónorðinu.

Bryggja:
Marion er að snuðra og Frank kemur og hann spyr af hverju hún sé þarna. Hún segir að hún sé að leita að bryggju 13 þar sem Alan-Michael er með bátinn sinn. Marion reynir að smjaðra fyrir Frank en hann spyr hana hvort hún hafi séð eitthvað. Líkið af Nadine liggur falið, samstarfskona Frank kallar á hann og Marion hrekkur við, að hvort hún sé að koma. Frank fer til hennar og Marion/Brent hendir líkinu af Nadine í sjóinn. Svo segir Frank Marion að setjast inn i bílinn sinn og bíða þar. Sú sem hann vinnur með segir að Marion sé karlamaður og er nákvæmlega eins og lýsing af þeim sem fór af stanum þegar sjóarinn var myrtur. Hún vill fá handtökuheimild á hana/hann en Frank segir að það standi tæpt.

Bátur Alan Michael:
Alexandra kemur og talar um Alan og vill að AM og hún reyni að fá Alan lýstan geðveikan annars mun hann draga hana og AM niður og gera þau öreiga. Alex fer að tala um Spaulding fyrirtækið en AM vill ekki hlusta á það og reynir að segja henni að hann hafi annað að hugsa um. Lucy kemur inn og segir Alex að hún sé “sýkt” og það bíð hennar önnur prufa og svo meðferð. Alex vissi ekki þetta og biðst afsökunar og býður fram hjálp. Alex fer svo og Lucy og AM verða eftir. Lucy og AM kyssast.

Goshen:
Alan og Reva spjalla saman um veikindi Abigails og að Abigail sé hrifin af Rick. Því að Abigail vill að hann lækni sig. Reva og Alan spjalla um gamla tíma og hann segir að hann elski hana og allir snúi baki í hana ef hún kemur til Springfield en hann er sá eini sem ekki mun gera það. Hún sér sýn sem hún getur ekki losnað við. Abigail kallar mamma, mamma. Alan segir Revu að fara að sofa og henni dreymir að hún sé í Springfield og Hawk kemur inn og hún reynir að tala við hann en það gengur ekki og svo kemur Josh og Annie inn og hún reynir að tala við þau. Svo kemur Alan og hún spyr hann hversvegna þau svara henni ekki og hann segir að þau hafa snúið baki í hana en hann mun verða þarna áfram. Josh og Annie eru að skoða eitthvað og þegar Reva ætlar að skoða hvað það er þá vaknar hún.

This Has Been Guiding Light


ATH.
Þetta er eingöngu fyrir fólk sem hefur gaman að fjalla á jákvæðan hátt um Leiðarljós.