Brúðarkjólaleiga:
Vanessa kemur inn og sér Dinuh, Vanessa er að sækja brúðakjól og biður Dinuh að vera eftir og hjálpa henni að velja brúðarkjól. Hún mátar nokkra og Dinah segir henni til. Svo býður hún henni í brúðkaupið en D spyr hvort hún mætti taka Roger með, V svarar því játandi en D segir að þú komst ekki í mitt svo ég kem ekki í þitt. Og svo fer Dinah

Gistihús (Boarding House)
Nola er að breyta öllu og Matt kemur og rífst við Bridget um giftinguna og hún segir honum að róa sig og þetta bjargast allt. Hawk er að snæða og getur ekki borgað og Matt segir að hann verði. Nola segir hann verði þá að vinna fyrir þessu. Alexandra og Lillian kom ainn og fá borð, og Nola og Bridget bíðja hana um að fá lánað garðinn. Hún neitar en Nola kemur með það að ef hún gæti losað sig við Hawk þá myndi hún fá garðinn. Hawk kemur með bakka og Nola missir hann yfir Alex og allt fer í háaloft. Nola rekur Hawk út. Það koma sekkjapípuleikarar inn. Elani og Nadine eru að ræða um matinn, og Nadine sér að einhver verði drepin. Hún sér blóðdropa á hvítri rós.

Spauilding Enterprises:
Lucy og Alan-Michael eru að rífast um skjöl og stöðu bankareiknings. Marion kemur og spyr hvort ekki sé ekki allt í lagi. Jú svara þau. Susan og Nick rífast um grein og hún ásakar hann að nota sig og veikindin til að skrifa greinina.
Nick og Susan tala saman á kvennaklósetinu eftir að þau eru búin að reka Marion út og segir að Alexandra se´að nota hana og hann vill ekki nota hana og þau sættast
Stelpurnar Lucy og Susan tala saman á klósettinu og ræða þetta mál og Lucy segir að Alexandra hafi rekið Nick inn í þetta. Marion kemur og vill ekki skipta sér af. Lucy fer og Susan og Marion tala saman og Marion segir að best sé að Lucy hætti hjá Spaulding. Susan grunar eitthvað. Nick og Alan-Michael ræða saman.

Alan og Rebecka
Alan kyssir Rebecku (Reva) og hún slær hann utanundir og þau tala um að hún eigi að koma aftur til Springfield. Hann býðst til að hjálpa henni en hún vill það ekki. Hún er Rebecka Blume en ekki RIva Shane. Rebecca (Riva) er hugsi þegar hún labbar í burtu. Alan verður eftir og glottir og segir Reve er komin aftur og ég ætla ná henni.
This Has Been Guding Light

Núna er komið fjör í þáttinn, Hver verður myrtur og fær Alan Revu ???

ATH.
Þetta er eingöngu fyrir fólk sem hefur gaman að fjalla á jákvæðan hátt um Leiðarljós.