Libby að taka við sér? Loksins er Libby hætt þessum stælum og farin að hegða sér eins og almennilegri manneskju sæmir.
Hún gat feisað Drew án þess að trompast eða fara í burtu. Loksins!
Mikið var ég orðin þreytt á þessu endalausa bulli og stælum í henni. Ekkert mátti segja við hana án þess að hún snappaði.
Þá er bara spurningin hvort hún muni taka hann Drew sinn í sátt aftur og gleyma þessu sem á undan hefur gengið og ganga í það heilaga með honum eða mun hún missa hann í hendur Steph.

Eins og við erum búin að fá að sjá núna í síðustu þáttum þá er Steph ekkert að höndla sig lengur, hún er hreinlega að deyja úr ást yfir hinum fullkomna Drew sínum. Getur ekki verið ein með honum og kemur með fáránlegar afsakanir til þess að komast hjá því að hanga með honum.

Þannig spurningin er.. Hver nær í Drew, verður Það Libby eða Steph eða mun hann vera á lausu það sem eftir er??