Hér er það sem gerðist í þættinum 12. september :D
-

Seth reynir sitt besta til að vera vinur Summer , fær sér jafnvel vinnu til að vinna hrifningu hennar í ,,The Bait Shop” eða beitu skúrnum sem heldur tónleika með hjómsveit sem Summer heldur upp á. Hann fær miðana fyrir hana en kvöldið endar illa því Seth reynir að kyssa Summer og hún fór. Í endan þá kemur Seth að Summer , Zach og pabba Summer að borða saman , eins og hann hafði gert með þeim en það gekk ekki vel.

-

Ryan lendir í vandræðum þegar ný stelpa kemur í skólann að nafni Lindsay Gardner . Hann hellir kaffi framan á hana og svo gaf henni olnboga skot í nefið. Þetta atvik sem hefur örugglega verið mjög vandræðalegt enda þau saman að vera verkefnis félagar. En ekki gengur vel þar heldur þar sem Lindsay leyfir Ryan ekki að hjálpa við verkefnið og Ryan er ekkert sérstaklega ánægður með það. En í endinn þá urðu þau bara vinir.

-

Caleb var settur í fangelsi yfir nóttina og núna er Kirsten og Sandy að vinna í fullu í því að sanna sakleysi hans, en gengur ekki svakalega vel því að Sandy verður rekinn úr vinnunni sinni.

-
Á meðan allt þetta er að gerast þá er Marissa ein, DJ talar ekki við hana né Ryan, Systir hennar í heimavistarskóla og býr hjá mömmu sinni sem hún hatar. Vorkenndi henni svaka þegar hún kom og sá Ryan og Lindsay.
"Reading is one form of escape. Running for your life is another."