…………………………………………..
Ég bara veit ekki hvað ég á að segja um hann… ég verð að segja að ég varð fyrir svolitlum vonbrigðum með skjá einn. Þeir voru löngu búnir að sýna hvað myndi gerast í þættinum og það eyðilagði algerlega fyrir mér allan þáttinn.
…………………………………………..
En allaveganna þá kom það í ljós að þessi garðstrákur er búin að vera með Marissu allt sumarið. Mér brá frekar mikið þegar hún sagði Summer frá þessu.
………………………………………….
Greinilega þá var Seth soldið svekktur þegar hann komst að því að strákurinn sem hann var svo ánægður með væri með Summer.
Seinna í þættinum þá sagði Summer Seth að hún vildi hann ekki af því að alltaf þegar hann fékk hana þá vildi hann hana ekki. Ég myndi algerlega vilja að þau myndu byrja saman.
………………………………………….
Ég myndi líka vilja að Ryan myndi skilja af hverju Marissa laug. Þau eiga að vera saman. Svoleiðis á þetta að vera. En þetta væri ábyggilega ekki góður þáttur ef allir væru ánægðir.
………………………………………….
Caleb var handtekinn fyrir eitthvað sem hann gerði ekki. Ég skil ekki af hverju en ég er bara búin að horfa á þáttinn einu sinni og á eftir að horfa á hann oftar og pæla betur í honum…
En við verðum bara að fylgjast betur með og sjá hvernig það gengur.
………………………………………….
Hailey (Systir Kirsten) fékk vinnu í Japan og þurfti því að fara frá Jimmy. Hann bað hana um að giftast sér en hún greinilega hefur sagt nei. Það verður að fylgjast betur með því hvernig Jimmy tekur þessu betur. Hann var svakalega ástfanginn af henni.
………………………………………….
Það gerðist auðvitað miklu meira í þættinum en eins og ég sagði þá horfði ég á þáttinn bara einu sinni og ég pikka bara svona helstu atriðin úr og tala um þau.
Lastu Þetta?..