Úff hvað á maður að segja? Fyrst þá sá maður hvar Kirsten og Sandy voru að endurbyggja húsið sitt og Kirsten í kasti yfir því að Seth var ekki kominn heim.

Summer og Marissa voru í sólbaði og þær voru að segja hvor annari frá því að þær höfðu ekki talað við “fyrrverandi” kærastana sína lengi.

Næst þá hringdi Kirsten í Seth og grátbað hann um að koma heim. Seth harðneitaði. Hann vildi vera í Portland í staðinn fyrir að fara heim, þar sem hann vildi ekki vera vegna þess að Ryan fór.

Talandi um það… Ryan fór í vinnuna og þar hitti hann Sandy. Sandy gaf honum flugmiða til Portland til að reyna að fá Seth aftur heim.

Caleb og Julie voru að tala saman um hvað Julie ætlaði að gefa Katlin. Þegar hún var að fara spurði Caleb Julie hvort hún væri nokkuð að setja reikninginn á fyrirtækið. Julie fölnaði og spurði af hverju. En hún endaði á því að segja að hún ætli að nota svarta kortið.

Næst hittust Sandy og Caleb á bílastæði. Caleb var hræddur um að það væri allt út í hljóðnema í húsinu hans og húsi Sandy.

Seth og Luke voru að vinna og það við að kenna að sigla bát. Þeir voru samt inni í eitthverri búð. Þangað komu tvær stelpur. Ein var kærasta Luke en hin var að reyna við Seth.

Marissa og Julie voru að tala saman og Julie spurði hvernig Marissu liði. Marissa spurði hvort hún vilji í alvöru vita það. Julie kinkaði kolli. Marissa öskaraði í nokkrar sekúndur og henti svo sólstól og borði í sundlaugina, svo gekk hún í burtu.

Summer kom til Kirsten með allt dót sem Seth átti sem hún var með, bara til þess að henda því á rúmið hans. Eitthver sálfræðingur sem hún hefur verið að fara til sagði henni að gera það.

Marissa var að drekka vín í eitthverjum vita við ströndina. Hún hringdi í Ryan. Hún sagði ekki neitt. Ryan vissi samt að þetta var hún. Terisa var vakandi og vissi að það var eitthver og hún var hrædd.

Daginn eftir kom Ryan inn með ferðatösku. Hann ætlaði til Portland. En Terisa spurði hvort hann hafði gleymt læknistímanum. Þá hætti hann við að fara. Terisa spurði hvað var í gangi. Ryan sagði að hann ætlaði að fara til Chino til að gera öllum lífið léttara en gerði það því miður erfiðara. Terisa sannfærði Ryan um að hann ætti að fara til Portland og hitta Seth.

Sandy kom til Seth. Og Seth var ekki ánægður að sjá hann. Þeir rifu kjaft við matarborðið. Þeir sættust samt morguninn eftir. Sandy sagði að Seth mætti vera þarna. Reyndar sagði hann að hann myndi hætta að mótmæla því að hann væri þarna.

Ryan fór til Portland og hitti Seth. Hann var þarna lengi. En þeir voru að spila tölvuleik. Hann,Seth og Luke. Þá hringdi síminn. Það var Terisa. Hún sagði að hún fór til læknisins og hafi ekki fundið hjartslátt í barninu. Hún sagði að hún hafi misst fóstrið.

Terisa grét og mamma hennar kom inn í herbergið. Mamma hennar sagði að þetta var fyrir bestu af því að Ryan vildi bara barnið en ekki hana.

Þegar Ryan fór þá snéri hann við þegar hann kom að leigubílnum. Hann fór aftur inn og Seth kom líka á móti honum.

Það næsta sem maður sá var það að þeir voru komnir heim til Sandy og Kirsten.

Þátturinn endaði svo á því að þeir voru að spjalla saman í sundlaugarhúsinu.
….