Nágrannar-persónumat Steph Scully-Nágrannar

Stephani(kann ekki að skrifa það) Scully er í Scully fjölskylduni en í henni eru Lyn og Joe Scully og svo öll börnin, Steph, Jack, Flick, Michelle og Oscar.

Mér finnst Steph Scully vera alveg frábær persóna hún fékk t.d. krabbamein en barðist við það lengi án þess að gefast upp, svo fékk hún líka góðan stuðning frá bróður sínum:)en svo fór það að lokum sem betur fer. Annars minnit mig að hún hafi leynt mömmu sinni krabbameininu um tíma en svo hafi hún sagt henni það. Svo hætti hún með Max því hún vildi ekki að hann myndi þurfa að ganga í gegnum þetta aftur(konan hans dó úr veikindum). Svo fattaði Max að hún hafði hætt með honum útaf krabbameininu og kom þá aftur til hennar og hjálpaði henni í gegnuð það(minnir mig).

En svo fyrir löngu þá var hún að gifta sig(man ekki hvað hann heitir) og systir hennar Flick svaf hjá kærastanum hennar og það komst upp við altarið þegar þau voru að giftast og Steph fór alveg að gráta og hljóp burt og þannig en svo eftir langan tíma þá fyrirgaf hún systur sinni. Sem mér finnst alveg frábært hjá henni því ég veit að ekki allir hefðu getað gert það. Eftir það sem hún(Flick) gerði.

En svo þegar hún og Max voru bara vinir þá byrjaði hún eitthvað að verða skotin í honum og talaði mikið um það við Libby bestu vinkonu sína(ásamt Dee sem er því miður dáinn) svo loksins kysstust þau og byrjuðu að vera saman eftir að Summer(dóttir Max) var lengi búin að vera að reyna að koma þeim saman því henni fannst Steph vo skemmtileg og vildi endilega að þau myndu byrja saman. Boyd leist fyrst ekkert vel á þetta en á lokum þá sættist hann við þetta. Svo eftir man ekki hvað langt samband kannski 2-3 ár er ekki viss þá ákváðu þau að gifta sig. En Lyn(mamma hennar) og Valda(amma hennar) voru svo mikið að skipuleggja þetta risastóra brúðkaup fyrir hana að hún fékk ekkert að ráða neinu og það var bara alveg vaðið yfir hana. Þannig hún og Max ákváður að stinga af saman og með börnin( Summer og Boyd) og gifta sig upp í sveit. Og af því að kjólinn sem Steph átti að vera í var bæði mjö stór og heima hjá Lyn þá ákvað hún að gifta sig bara í því sem henni þykir vera þægilegast…gallabuxum. og Boyd, Summer og Max voru líka bara í því sem þeim fannst þægilegt, ekkert mjög fínt. En annars mér fannst þetta mjög flott ákvrðun hjá henni að stinga bara af og gifta sig upp í sveit, hún er þess vegna mjög sjálfstæð. En svo komu ættingjar hennar upp ín sveit til hennar og sáu brúðkaupið sem var bara lítið eins og Steph vildi.
Svo núna eru hún og Max ennþá hamingjulega gift.

Svo var hún alltaf algjör strákastelpa hún gekk ekkert í pilsum né kjólum bara buxum og var alltaf á mótohjólinu sínu. En svo kynntist hún Max og varð kona. En svo lét Max hana selja hjólið sitt en keypti það svo aftur handa henni minnir mig.

Svo þegar bróðir hennar var á erfðiu tímabili þegar hann var alltaf á klúbbum og drekka og var að láta fjölskyldufyrirtækið fara á hausinn þá hjálpaði hún honum og studdi hann vel eins og hann gerði fyrir hana á meðan krabbameininu stóð.
Svo komst hann aftur á rétta braut og hætti að stunda klúbba og drekkur töluvert minna kannski hættur ekki viss samt.

En svo eru hún og Max nýbúin að rífast og hún flutti til vinar síns í smá tíma, því að Max neitaði að fara í svona glasafjógun með henni (því þau geta ekki eignast börn saman)og þá hélt hún að hann vildi ekki eignast börn með henni. En svo sættust þau og hann samþykkti glasafjógunina.

Það er í rauninni ekkert merkilegt í gangi með hana núna en þetta var svona það sem mér fannst vera mikilvægast með henni. Hún er mjög sjálfstæð og skemmtileg persóna.

Ef eitthvað þarna uppi var rangt hjá mér eða ég gleymdi einhverju þá endilega segið mér það.