Í þessari grein ætla ég að persónuálit í Guiding Light eða Leiðarljós.

Tangie Hill: Ég elska Tangie, hún er algjört æði og rosalega mikill snillingur. Mér finnst að hún ætti að vera með Alan því þau passa miklu betur saman en hún og Alan-Michael, þótt þau séu svakalega sæt saman. Mér finnst hún miklu skemmtilegri núna heldur en hún var þegar hún var með Josh. Ég man rosalega vel eftir þættinum sem hún kom fyrst, það var einhver veisla fyrir Mindy og mennirnir héldu að Tangie væri Mindy því lýsingin sem þeir fengu var falleg ljóshærð kona sem Tangie er einmitt!

Lucy Cooper: Lucy er æðisleg, skemmtileg og bara frábær! Elska þessa persónu í þáttunum. Mér finnst eins og margir aðrir að hún eigi að vera með Alan-Michael. Ég man svo vel eftir þegar hún kom fyrst í bæinn og var eitthvað í bílnum hjá AM og svoleiðis. Síðan þá hef ég viljað að hún og AM ættu að vera saman.

Frank Cooper: Mér finnst Frank vera mjög skemmtilegur og myndarlegur. Hann og Eleni eru rosalega sæt saman og það er rosalega gaman að fylgjast með þeim. Hann er líka svo góður pabbi með Marinu!

Nadine Cooper: Mér finnst Nadine vera æði. Hún er svo myndarleg og skemmtileg. Mér finnst að hún hefði aldrei átt að byrja með Buzz aftur því hann er búinn að særa hana svo mikið í gegnum tíðina!

Buzz Cooper: Buzz er alveg ágætur, fyrir utan þetta með Jennu og Nadine kjaftæði hjá honum! Hann átti bara að ákveða strax að vera með Jennu ef hann elskar hana svona mikið en ekki fara að giftast Nadine!

Harley Cooper: Ég elska Harley og vona að hún komi aftur fljótlega. Ég sakna hennar svo mikið. Það er alltaf svo skemmtilegt í kringum hana, svo er hún svo fyndin og falleg!

Eleni Cooper: Eleni er ein fallegasta og skemmtilegasta konan í Springfield. Ég hef ekki mikið að segja meira um hana nema hún og Frank eru fullkomin saman!

Marina Cooper: Mér finnst Marina vera svo fallegt barn að ég bara varð að hafa hana með! Hún er svo rosalega mikil dúlla!

Alexandra Spaulding: Mér finnst Alex fín. Mér finnst hún svo skemmtileg núna að hafa fengið bæði Vanessu og Blake til að skrifa undir til að Alan fengi eignir sínar aftur. Hlakka rosalega til að sjá svipinn á Alex, Blake og Roger þegar þau fá að vita að Alan er alls ekki dauðvona!

Alan Spaulding: Mér finnst Alan algjört æði! Hann er svo skemmtilegur og fyndinn. Ég var svo rosaleg ánægð þegar hann komst útúr fangelsinu og núna þegar hann er að fara að fá eignir sínar aftur. Svo er líka fínt hjá honum að nota Roger svona. Ég vona að hann og Tangie verði saman einhverntímann og að samband hans og Alan-Michael eyðileggist ekki við það.

Alan-Michael Spaulding: Ég dýrka Alan-Michael! Mér finnst hann svo æðislegur, sætur, skemmtilegur, frábær og bara öll góð orð! Mér finnst að hann ætti að vera með Lucy, þau eru svo rosalega sæt saman.

Nick McHenry Spaulding: Ég hata Nick. Hann er svo leiðinlegur núna, en hann var samt einu sinni alveg ágætur áður en hann byrjaði að vinna hjá Spaulding og breyttist.

Melinda Sue Lewis Spaulding: Mér finnst Mindy alveg ágæt, en hún er samt alls ekki í neinu uppáhaldi. Hún fer stundum svakalega í taugarnar á mér og sum fötin sem hún gengur í eru hræðileg en sum eru jafnframt alveg frábær! Hún er samt að hækka í áliti fyrir að hafa farið frá Nick og segja allt þetta við Josh í einhverjum þættinum í vikunni um að hann væri að þykjast vera Billy og svoleiðis!

Vanessa Lewis: Mér finnst Vanessa alveg ágæt en mér finnst hún svo leiðinleg við Matt stundum, það er eins og hún skammist sín fyrir að vera með honum eða eitthvað svoleiðis! Annars finnst mér hún alveg fín og rosalega góð móðir.

Josh Lewis: Josh var ágætur en núna þoli ég hann ekki eftir að Billy fór í fangelsi. Josh reynir alltof mikið að koma í staðinn fyrir Billy og ég þoli það ekki. Annars var hann skemmtilegri áður en hann og Tangie hættu saman, hann er svo einmana eitthvað núna.

Dylan Lewis: Mér finnst Dylan alveg ágætur, hann er bara orðinn svo pirrandi núna eftir að hann varð blindur og enginn má hjálpa honum! Hann var rosalega fyndinn og skemmtilegur áður en hann varð blindur, hann breyttist svo rosalega mikið!

Bridget Reardon: Ég dýrka Bridget. Hún er svo skemmtileg, myndarleg og fyndin. Fannst hún samt eiginlega skemmtilegri áður en hún byrjaði með Dylan. Þá var hún miklu líflegri, núna er hún bara að sjá um gistihúsið, Peter og svoleiðis. En hún og Dylan eru samt mjög sæt saman og passa líka mjög vel saman.

Peter Lewis Reardon: Peter er svo rosalega fallegt barn! Mér finnst að Bridget ætti að vera með fullt forræði yfir honum því hún er mamma hans, ekki Vanessa.

Ed Bauer: Mér fannst Ed alveg hundleiðinlegur en hann hefur skánað aðeins eftir að hann byrjaði með Eve og líka eftir að það varð ljóst að hann keyrði ekki á Dylan. Það var eins gott að hann stökk ekki útaf vitanum eða eitthvað þegar hann var ekki búinn að fá að vita að hann keyrði ekki á Dylan. Ég var með svakalegar áhyggjur að hann myndi stökkva! Held samt að hann myndi ekki gera það útaf Eve og Michelle.

Michelle Bauer: Mér finnst Michelle alveg ágæt, hún batnaði mjög mikið eftir að hún tók Eve í sátt. Mér fannst hún mjög leiðinleg þegar hún þoldi ekki Eve og vildi að Ed væri með Holly.

Eve Guthrie: Mér finnst Eve mjög fín. Þoldi hana ekki einu sinni þegar hún var að ráðast á Mindy og svoleiðis því þá hélt ég með Mindy. Núna hefur hún skánað alveg helling finnst mér, eftir að hafa komist yfir Nick og byrjað með Ed!

Ross Marler: Mér fannst Ross leiðinlegur stundum en hann er búinn að skána alveg heilmikið eftir að hann og Blake giftust. Hann er alveg ágætur núna og nær Howie alveg rosalega vel þegar hann og Blake léku á Alan, það var snilld!

Christina “Blake” Thorpe-Marler: Mér finnst Blake mjög skemmtileg, fyndin og falleg. Mér finnst svo gaman að fylgjast með henni!

Jenna Bradshaw: Mér fannst Jenna stundum óþolandi, en núna þegar hún er að fara vill ég að hún sé lengur og ali barnið upp með Buzz. Þoli samt ekki þegar hún er að tala við barnið og kalla það “little one” eða eitthvað svoleiðis. Annars getur hún verið alveg ágæt og hún er að batna aðeins. Þoldi hana alls ekki þegar hún og Roger voru gift, þá hataði ég hana!

Roger Thorpe: Ég hata Roger. Hann er bara svo rosalega leiðinlegur og ljótur! Ég þoli ekki hvað hann er alltaf að svíkja fólk og svoleiðis, ég vona að Alex spilli sambandi hans og Holly eða eitthvað svoleiðis verra!

Holly Lindsay: Mér finnst Holly mjög leiðinleg persóna. Líka ömurlegt hvernig hún var alveg með þráhyggju yfir Roger og Alex þegar þau voru saman! Mér finnst hún og Roger passa mjög vel saman þar sem þau eru bæði hundleiðinleg!

David Grant: Ég dýrka David. Hann er svo sætur og æðislegur. Mér finnst að hann ætti að vera með Gabriellu núna þótt hann og Kat voru alveg rosalega sæt saman og hefðu átt að giftast.

Gabriella Lopez: Mér finnst Gabriella mjög fín. Ég vona að hún fari ekki í fangelsi og að hún og David byrja saman. Mér fannst svo fallegt af henni líka að bjarga David!

Fletcher Reade: Mér finnst Fletch svona sæmilegur, en hann er stundum alveg hrikalega pirrandi, og hvar fær maðurinn þessi hryllilegu föt?!


Annars er ég held ég komin með flestar persónurnar úr Leiðarljós og þakka bara lesturinn!! =)
We were swimming in the ocean