One Tree Hill þátturinn í kvöld var ekki jafn dramaþrunginn og flestir lokaþættir í svipuðum seríum.
Margt og mikið gerðist að vanda og má þar helst nefna að Dan er líklega dauður, Lucas sagði Brooke að hann vildi fá hana en brooke neitaði samt sem áður. Nathan er fúll í Lucas og vill ekki vera vinur hans lengur og það síðasta sem við fáum að vita um Nathan er að Haley kemur til baka en svo ekkert meira. Einnig kemur Mamma Peyton til baka sem mér fannst soldið dkrýtið því ég hélt að Peyton hefði verið með henni í bíl þegar hún átti að hafa dáið.

Endirinn gefur manni sterklega til kynna að önnur sería verði gerð. (sem þið kannski vissuð fyrir, ekki ég) Ég held líka að Dan deyji og ég er 99% viss um að Keith framdi verknaðinn. Hann var einhvað að þvælast þarna þegar Karen sá hann og þetta var of grunsamlegt.

Mér fannst þátturinn ekki nógu góður miðað við lokaþátt, hann var bara eins og hver annar þáttur. Skilur eftir fullt af spurningum…. en hvað finnst ykkur?
You walk up to her