Ég byrjaði að horfa á Nágranna fyrir svona 2 árum.. eða þá byrjaði ég að horfa alltaf.. hafði svona fylgst með stundum bara áður!
En það sem heillaði mig sambandi við þessa þætti voru nú stelpurnar..:) Þar sem ég var gelgja þegar ég byrjaði að horfa á þetta þá voru það Flick, Michelle, Dee, Steph og þær stöllur sem héldu mér við skjáinn! :) En þar sem ein þeirra er bara eftir, þá er þetta ekki alveg jafn spennandi.. ! En nýjar og jafnvel betri hafa bæst í hópinn.. þar á meðal Sky, Sindi, Serena, Nina(sem er reyndar farin líka, en kemur líklega aftur). Þetta eru sko uppáhalds þættirnir mínir, og ég verð alveg út ef ég missi af þætti! :(
Skemmtilegast við þessa þætti er hvað persónurnar eru misjafnar.. Enginn persónuleiki eins í þessum þáttum! :) Svo er alltaf eitthvað að gerast hjá einhverjum sem lætur mann einhvernvegin ekki missa af neinu! :) Svo þegar eitthvað rosalega spennandi er í gangi fer maður á neighbours.com og les frammí tímann, svo oftast veit ég allavega hvað er að fara gerast! :)
Svo nátturulega líkar manni ekki við suma í þessum þáttum, en það gerir þá bara skemmtilegri, að tala illa um persónurnar eftir þáttinn, blóta þeim og þess háttar! :) Það vantar samt að gömlu persónurnar komi aftur.. Scully stelpurnar og þær.. og Dee.. sakna hennar mest! :(