Ég byrjði að fylgjast með Leiðarljósi fyrir svo löngu að ég man eftir því þegar Lujack var á lífi og með Beth og þau voru að klekkja á Kyle Simpson…
Man meira segja eftir eldri hlutum úr þessu man eftir fyrista þættinum sem ég horfði á þá var eitthvað rosalegt mál í sambandið við einhverja brúðu… minnir að þátturinn hafi verið númer 68 ;) En ég væri svo til í að sjá gömlu þættina aftur, er liggur við komin á það að reyna að finna þá einhverstaðar :D

Ég var ein þeirra sem soldu þessa þætti ekki fyrren ég horfði á einn með gömlum vinum mínum og varð hreinlega bara hooked og er búin að vera það í mörg ár… held ég alveg 8 ár :D Hef ekki séð alla þættina sem er já soldið ómögulegt vegna vinnu og slíks :) En ég virkilega fíla það að horfa á þetta… ég er ekki nema 20 ára og skemmti mér rosalega vel yfir því að fylgjast með hvað fólki er skipt út og slíkt.
Nýjir aðilar á karakterana er bara gaman en finnst það samt alltaf jafn asnalegt að hafa fengið Nick inn því að fyrir mér er hann Lujack nema sá var ekki svona mikill asni og mömmustrákur… drengurinn var rokkari ;)

En ætla að setja endapunktinn hérna, finnst gaman að vita það að það eru fleiri en ég sem fylgjast með þessu sem eru ekki gamlar konur sem sitja í Laxzyboyinum og hafa það flott :D Ætla þokkalega að vera ein slík :D

kv. Taran