Hér ætla ég að segja smá frá elskuðustu og hötuðustu persónunum mínum í The O.C. og One Tree Hill.

The O.C.

Elskaðasta Persónan mín í The O.C. er Seth Cohen.í byrjun þá var hann allaf einn og átti enga vini og ég vorkenndi honum alltaf þegar það var talað um það t.d. þegar hann og Summer voru að fara í gegnum skólabókina þegar þau voru að laga til herbergið hjá Marissu og þá voru fullt af myndum að honum einum í einhverjum klúbbum. En hann Seth hefur alltaf verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér alveg síðan O.C. byrjaði og er það ennþá.

Hataðasta Persónan mín í The O.C. er Oliver Trask.Oliver er bara óþolandi og ég held að flestir aðdáendur The O.C. séu sammála. Hann kemur inn og eyðileggur samband Marissu og Ryan og Ryan veit að hann er bara að leika með Marissu og en enginn truer honum. Þegar ég var að horfa á O.C. á því skeiði sem Oliver var þá var ég að vona að hann myndi fara í hverjum einasta þætti . Hann er bara ótrúlega óþolandi.

One Tree Hill

Elskaðasta Persónan mín í One Tree Hill er Nathan Scott. Í byrjun þáttana þá var hann ekki í neinu uppáhaldi hjá mér því hann var svo leiðinlegur og var alltaf að gera Lucasi lífið leitt. En þegar Nathan fór að vera með Haylie þá breyttist hann og manni var farið að þykja vænt um hann því hann var svo frábær við Haylie og þegar hann var með henni.

Hötuðustu Persónurnar mínar í One Tree Hill eru Nikki og Haylie James (Scott)

Ég ætla að byrja á Nikki. Mér finnst hún alveg hræðilega leiðinleg. Hún fer frá Jake og skilur hann eftir með dóttur þeirra Jenny og svo kemur hún aftur eftir heillangan tíma og ætlast til þess að hún geti aftur fengið Jenny aftur eins og ekkert sé! Þegar hún kom first í þættina þá var ég alveg svakalega pirruð á henni og var svaka ánægð þegar Brooke sagði henni að Jake hefði farið eitthver lengst í burtu og lét hana keyra þangað meðan Jake var hjá frænda sínum. Þá hélt ég að þau væru búin að losna við hana, en nei hún kemur aftur og gerir allt vitlaust og fær lögguna með sér í málið og lætur Jake í fangelsi.

Ég trúi ekki hvernig Haylie hefur látið eftir að hún fór að syngja. Hún bara eyðilagðist, first var hún alltaf svo góð og indæl en þegar hún hittir Chris þá breyttist hún og dýfur sig að fara frá Nathan til að syngja og vill ekki vera lengur gift Nathan. En mér fannst hún ótrúlega léleg í síðasta þætti þegar hún sagði að hún væri ekki “tilbúin” fyrir allt þetta og að þau Nathan hefðu verið bara krakkar þegar þau giftu sig . Eftir það þá fannst mér hún ömurleg.

Takk fyrir mig..
"Reading is one form of escape. Running for your life is another."