Hata & Elska Hataðasta Sápan
Leiðarljós! Ég er búin að reyna að fylgjast með þessu í mörg ár.
Alltaf sama vesenið aftur og aftur, ekkert voða vel leikið heldur!

Elskaðasta Sápan
One Tree Hill!
Mánudagskvöld eru OTH kvöld.
Það er glæpur að missa af þessu.
Skemmtilegir karakterar, góður söguþráður. Nógu mikið af fjölskylduflækjum og veseni en ekki of mikið og alltaf eitthvað nýtt.

—-

Hataðasta Persónan
Dan í OTH.
AHHH! Mig langar svo að … já ehm, förum ekkert út í það ;)
Maður heldur alltaf að hann sé að breytast og verða góður en þá verður hann bara verri og ömurlegri!

Elskaðasta Persónan
Peyton.
Peyton er fullkomin persóna í sápu. Ekki OF góð en alls ekki vond. Er vinur vina sinna og vill vel en er samt svolítið rugluð á öllu í kringum sig.

Takk fyrir :)