Hataðasta og elskaðasta sápupersónan Hér kemur smá tilkynning um nýtt greinaátak.

Kæru sápuunnendur.

Nú eru flestir námsmenn að byrja sumarfríið sitt og því alveg upplagt að skrifa eins og eina sápugrein.
Í þessu nýja greinaátaki sem ég kýs að kalla “Hataðasta og elskaðasta sápupersóna allra tíma” á að skrifa um þá sápupersónu sem viðkomandi greinarhöfundur hatar mest í sögu síns sápuáhorfs. Jafnframt á að skrifa um þá persónu sem greinarhöfundur elskar mest. Ef þið viljið megið þið líka bara skrifa um annað hvort.

Greinin verður að vera u.þ.b. 300 orð í minnsta lagi og gaman væri að mynd fylgdi með. Þið verðið að færa rök fyrir máli ykkar og svara spurningum eins og t.d. af hverju persónan er svona ömurleg/frábær, hvað þolir þú ekki við hana, elskar þú við hana o.s.frv. Þetta getur verið persóna sem er hætt í þáttum sem eru sýndir núna ef þið viljið.

Vonandi sjá einhverjir sér fært að skrifa skemmtilegar greinar handa okkur.

Karat, stjórnandinn á Sápum.